Brjóstagjöf - vitundarvakning um áhrif tunguhafta Júlíana Magnúsdóttir og Sonja Magnúsdóttir skrifa 20. ágúst 2021 10:31 Undanfarin ár hefur orðið mikil vitundarvakning um áhrif tunguhafta á almenna heilsu. Með aukinni vitneskju leita foreldrar í auknum mæli eftir aðstoð ef brjóstagjöf gengur ekki sem skildi, ef barn á erfitt með að meðhöndla mat eða á í erfiðleikum með framburð. Fullorðnir einstaklingar leita sér aðstoðar ef þeir m.a. þjást af kæfisvefni, tíðum höfuðverkjum og fleiri kvillum. Tunguhaft getur haft áhrif á rétta hvíldarstöðu tungunnar, sem aftur hefur áhrif á vöxt og þroska andlitsbeina hjá börnum, á svefn, tennur og öndun (munnöndun vs neföndun) Við erum öll með tunguband undir miðri tungunni. Þegar þetta band er stutt, stíft, þykkt eða jafnvel eins og Eiffel-turninn í laginu og það heftir hreyfigetu tungunnar tölum við um tunguhaft. Þegar vefur er vel sjáanlegur undir tungunni er talað um fremra tunguhaft. Það hefur áhrif á hreyfanleika fremri hluta tungunnar. Það er hins vegar aftara tunguhaft sem hefur mest áhrif á ungbörn því rannsóknir sýna að það eru ölduhreyfingar um miðbik tungunnar sem skipta mestu máli til að draga til sín mjólk úr brjósti eða pela. Því skiptir máli að barnið geti lyft þeim hluta tungunnar. Aftara haft sést ekki með berum augum og því líklegt að það fari fram hjá þeim sem skoðar, hafi viðkomandi ekki vitneskju um hvernig á að skoða það. Tunguhaft er ekki eitthvað tískufyrirbrigði. Í sögulegu samhengi eru fyrstu heimildir um tunguhaft frá því á 3. öld fyrir Krist og fyrstu heimildir um aðgerð á tunguhafti frá 7. öld eftir Krist. 1794 er ártal sem kemur upp þegar spurt er um sögu tunguhafts í leitarvél. Þar kemur m.a. fram að ljósmæður hafi alltaf passað upp á að hafa langa nögl á litla fingri til að ,,skera” á tunguhaft hjá nýfæddu barni. Sem betur fer eru áhöldin orðin nútímavæddari en ýmist eru notuð skæri, skorið á með hníf eða notaður ,,leiser“. Brjóstagjöf er náttúruleg leið til að næra barn og byggir á eðlilegu samspili milli framleiðslu brjóstamjólkur og sogi og öðrum viðbrögðum sem ungbörn fæðast með. Stundum gengur brjóstagjöf illa og eru þá brjóstagjafaráðgjafar eða talmeinafræðingar með sérhæfingu í fæðuinntöku kallaðir til ráðgjafar. Talfæraskoðun er gerð þar sem m.a. er horft eftir frávikum í munni ásamt mati á hreyfifærni tungunnar til að fullvissa sé um að barn sé að beita tungunni rétt til að draga fram mjólk úr brjóstinu. Einkenni sem gefa til kynna að rangt sog sé viðhaft eru m.a. kveisa og mikið loft, sem lýsir sér í bakflæðilíkum einkennum hjá barni og sár og stíflur hjá móður. Inngripin hafa hingað til verið lyf og notkun hjálpartækja eins og Mexíkóhatts, sem koma ekki í veg fyrir rót vandans, grip og sog barns verður ekki lagað með þeim. Skv. rannsóknum er tíðni tunguhafta hjá nýfæddum börnum 4-10%. Þeir sérfræðingar, sem vinna með þetta fyrirbæri daglega, vilja þó meina að tíðnin sé mun hærri. Rannsóknum á áhrifum tunguhafta fer fjölgandi, sérstaklega í ljósi þess að tunguhaft hefur ekki eingöngu áhrif á fæðuinntöku barna heldur getur það einnig haft áhrif á svefn bæði barna og fullorðinna, sem hefur ýmiskonar afleidd áhrif. Hafa ber í huga að allar rannsóknir byrja á sérfræðiáliti og væntingum skjólstæðingsins til þess. Nýjustu rannsóknirnar á tunguhöftum og áhrif þeirra fjalla einmitt um brjóstagjöf og bakflæði og hvernig tungustaða getur gefið vísbendingar um tunguhaft og er ný rannsókn undir stjórn bandaríska háls-, nef- og eyrnalæknisins, dr. Bobby Gaheri um áhrif aftara tungubands á brjóstagjöf væntanleg. Eins og fram kemur í upphafi hefur orðið mikil vitundarvakning á meðal foreldra um áhrif tungu- og varahafta en því miður eru þeir færri sérfræðingarnir, sem hafa ,,sérhæfingu“ í að losa um stíft tunguband. Það eru þó nokkrir í röðum talmeinafræðinga, brjóstagjafaráðgjafa, tannlækna, hnykkjara og háls-, nef- og eyrnalækna sem hafa aflað sér aukinnar þekkingar á tunguhöftum og áhrifum þeirra og nokkurs konar teymisvinna hefur verið í mótun. Þessi samvinna hefur gengið vel, foreldrar hafa fengið góða fræðslu um undirbúning fyrir íhlutun og skjólstæðingi fylgt eftir í einhverjar vikur eftir íhlutun og hann fengið bót sinna mála. Hingað til hafa Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) niðurgreitt þessa íhlutun en nú er svo komið að stofnunin ætlar að hætta að taka þátt í þessum aðgerðum að tilskipan embættis landlæknis. Ástæðan er m.a. sögð vera mikil fjölgun á ,,óþarfa“ aðgerðum! ,,Óþarfa“ aðgerðum svo að tungan geti sinnt hlutverki sínu... Hlutverk tungunnar er vanmetið þegar kemur að vexti og þroska andlitsbeina, þegar kemur að beinum og heilbrigðum tönnum, þegar kemur að öndun, svefni o.fl., o.fl. Það skiptir máli að tungan komist upp í góminn í hvíldarstöðu, sem gerist ekki þegar hún er fjötruð við munnbotninn. Þetta finnst okkur vera sorgleg þróun þar sem fjöldi barna og foreldra hafa öðlast ,,nýtt líf“ eftir að barnið fór að nærast og sofa eftir íhlutun á stífu tungubandi og rannsóknir segja okkur að fjöldi barna á eftir að þurfa á þessari íhlutun að halda til að nærast og sofa. Þessi ákvörðun SÍ yrði til þess að ekki aðeins þyrftu foreldrar að ganga á milli lækna í leit að svörum fyrir vansæl börn sem nærast ekki heldur þurfa þeir þá líka að leggja út fyrir íhlutuninni. Þetta er líka sorgleg þróun þar sem verið er að ráðast að sérhæfingu þeirra sérfræðinga sem hafa lagt út tíma og fjármuni til að auka við þekkingu sína á þessu sviði. Að taka ákvörðun um að fella niður niðurgreiðslu á mjög svo þarfri aðgerð hjá börnum á öllum aldri, aðgerð sem er læknisfræðilega nauðsynleg í flestum tilfellum, ýtir undir mismunun á fjölskyldum eftir efnahag og lýsir vanþekkingu á málinu. Við skorum því á embætti landlæknis til að endurskoða stöðuna og kynna sér málið betur, því íhlutun á tunguhafti á yngri árum getur sparað kerfinu þegar til lengri tíma er litið. Júlíana Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðingur og brjóstagjafaráðgjafi IBCLC Sonja Magnúsdóttir, talmeinafræðingur, M.A., CCC-SLP Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun Halldór 11.07.2026 Halldór Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Þegar maður gengur gegn eigin gildum Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson Skoðun Kannski erum við að spyrja rangra spurninga Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Minnir á kafla úr bók Franz Kafka Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Kannski erum við að spyrja rangra spurninga Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Þegar maður gengur gegn eigin gildum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Það borgar sig að skoða kostina Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Sjá meira
Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun
Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar
Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar
Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun