Bíó og sjónvarp

Ghostface mætir aftur til að hrella ung- og gamalmenni

Samúel Karl Ólason skrifar
Scream

Ghostface er mættur aftur og þetta sinn er það persónulegt. Svo virðist það allavega vera samkvæmt fyrstu stiklu nýjustu Scream-myndarinnar sem frumsýnd var í dag.

Tæknilega séð er þetta fimmta Scream-myndin en hún heitir þó eingöngu Scream. Þau Neve Campbell, Courtney Cox og David Arquette snúa öll aftur til að takast á við nýjan Ghosface-morðingja sem virðist vera að myrða ættingja morðingjanna í úr gömlu myndunum.

Þetta er fyrsta myndin í seríunni sem er ekki leikstýrð af Wes Craven en hann dó árið 2015. Þess í stað eru það Matt Bettinelli-Olpin og Tyler Gillett sem leikstýra myndinni sem á að frumsýna í janúar.

Þar má greina ákveðna nostalgíu í fyrstu stiklu myndarinnar og þá sérstaklega í upphafi þegar heimasími hringir hjá ungri konu sem er ein heima.

Í nýlegu viðtali við Entertainment Weekly sagði Gillet að leikstjórnir hefðu lagt mikið á sig til að tryggja að enginn vissi hver/hverjir, væri/væru morðinginn/morðingjarnir. Það hefði ekki komið fram í handritum sem leikarar myndarinnar fengu og þeir hefðu haldið því frá leikurunum þar til það varð ómögulegt við tökurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.