Tóku upp 15 mínútna kvikmyndaverk við lag Markétu Irglová Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 12. nóvember 2021 15:01 Frá tökum á kvikmyndaverkinu Among the Living.. Aðsent Anní Ólafsdóttir og Andri Snær Magnason leikstýrðu saman kvikmyndaverki við lag Markétu Irglová, Among the Living. Myndin var meðal annars tekin upp inni í Hallgrímskirkju. „
Among the Living er íburðarmikið og langt, heilar 15 mínútur með Siggi String Quartet sér til fulltingis. Among the Living er því nær því að vera stuttmynd en tónlistarmyndband. Markéta fékk til liðs við sig Anni Ólafsdóttur og Andra Snæ Magnason, en þau höfðu vakið athygli fyrir samvinnu sína í Þriðja Pólnum (2020) og Apausalypse (2021),“ segir í tilkynningu um verkefnið. Listakonan Markéta Irglová er farin að setja mark sitt á tónlistarlífið hérlendis. Hún fékk Óskarsverðlaunin fyrir besta lag í í kvikmynd árið 2007, fyrir lagið Falling Slowly ásamt Glen Hansard. Hún hefur nýverið gefið út þríleik af lögum, Quintessence, Among the Living og Mother, og er nú að vinna að þriðju hljóðvers plötu sinni sem gefin verður út 2022.Stilla Lifandi eða dánir? „Það er undir áhorfandanum komið hvort dansararnir tákni hina lifandi eða hina dánu. Því þetta ferðalag að sátt og samþykki gerist samtímis í heimi hinna lifenda og hinna dánu, þar sem við erum sálir í þessum heimi en ekki af þessum heimi,“ segir Marketa um lagið. Markéta hafði augastað á tveimur dönsurum, Ale Jara er Gaga dansari frá Paraguay og Yannier Oviedo sem er klassískur balletdansari frá Kúbu, búsettur á Íslandi. Anni hafði lengi langað til að vinna með Klavs Liepins sem er hreyfilistamaður frá Lettlandi. Þessir þrír dansarar undirbjuggu í sitthvoru lagi viðbrögð sín við laginu áður en þeir hittust og báru saman hreyfingar sínar. Stilla úr kvikmyndaverkinu Among the Living. „Dansararnir eru allir ólíkir, frá ólíkum löndum og nálgast dans frá ólíkum bakgrunni en eiga þó margt sameiginlegt. Þeir túlka trú, söknuð og þjáningu, feta hin ólíku og ólínulegu skref sorgar og þjáningar en í verkinu er von.“ Kvikmyndaverkið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Kvikmyndaverki við lag Markétu Irglová, - Among the Living Samið til þeirra sem hafa upplifað þjáningar Markéta fékk Anton Smára Gunnarsson til að sjá um kvikmyndatöku eftir að hafa unnið saman í myndbandinu fyrir The Leading Bird, sem kom út árið 2013 á plötu hennar MUNA. „Anní Ólafsdóttir leikstjóri hefur getið sér gott orð fyrir sterkt myndrænt auga og næmni í myndmáli. Hún hefur löngum verið hugfangin af hugtakinu Tarantism sem skilgreinist sem: „Óstjórnleg löngun til að dansa frá sér þunglyndi.“ Markéta samdi lag sitt sérstakega til þeirra sem hafa upplifað þjáningar, einmanaleika og missi í faraldri síðustu ára.“ Stilla úr kvikmyndaverkinu Among the Living. Hver og einn getur túlkað ferðalagið Lagið fjallar um sorgarferlið að missa ástvin. „Við upplifum öll vantrú, afneitun, sektarkennd, reiði, þunglyndi og að lokum samþykki. Von Markétu er að verkið hjálpi áhorfanda að finna huggun og upplifa að jafnvel þegar okkur finnst við vera ein, erum við aldrei ein því það er margt sem augað sér ekki og hugurinn getur ekki greint. Að dauðinn er ekki endalok, og tengdar sálir sameinast aftur áður en langt um líður. Þá er auðveldara að leyfa sér að njóta hvers dags því enginn veit hversu langan tíma við höfum á þessari jörð.“ Frá tökum. Among the Living er ferðalag um litróf tilfinninga, ást, sorg, einmanaleika, missi og söknuðar, hver og einn getur túlkað ferðalagið fyrir sig og texti Marketu markar auðvitað veginn líka. „Hér eru dansarnir að hjálpa áhorfandanum að tengjast sinni eigin túlkun eða upplifunum af svipuðum aðstæðum í sínu eigin lífi. Eins og dansari snýst heldur heimurinn og lífið áfram. Gegnum lagið og tarantismann, óstjórnlega þörf til að dansa frá sér þunglyndi, vonast leikstjórar til þess að hafa búið til verk um fegurð og von á erfiðum tímum.“
Tónlist Kvikmyndagerð á Íslandi Íslandsvinir Dans Bíó og sjónvarp Ballett Tengdar fréttir Óskarsverðlaunahafi hitar upp Óskarsverðlaunahafinn Markéta Irglová hitar upp á tónleikum Damien Rice í kvöld. 19. maí 2015 09:00 Sótti innblástur í íslenska víðáttu Markéta Irglová úr hljómsveitinni The Swell Season heldur útgáfutónleika í Kaldalóni í næstu viku. 13. nóvember 2014 17:30 Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Kát á kynfræðslukarnivali Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira
Óskarsverðlaunahafi hitar upp Óskarsverðlaunahafinn Markéta Irglová hitar upp á tónleikum Damien Rice í kvöld. 19. maí 2015 09:00
Sótti innblástur í íslenska víðáttu Markéta Irglová úr hljómsveitinni The Swell Season heldur útgáfutónleika í Kaldalóni í næstu viku. 13. nóvember 2014 17:30