Haylyna Hutchins, tökustjóri kvikmyndarinnar, fékk skot úr byssunni í bringuna og dó en skotið hitti einnig Joel Souza, leikstjóra.
ABC News birti í gærkvöldi fyrsta viðtalið sem Baldwin fór í eftir banaskotið en hann sagði lykilspurninguna vera þá hver hefði sett raunverulegt skot í byssuna, sem átti að vera tóm.
Bæði vopnavörður kvikmyndarinnar og aðstoðarleikstjóri áttu að hafa skoðað byssuna áður en hún endaði í höndum Baldwins og þegar Dave Halls, aðstoðarleikstjórinn rétti leikaranum vopnið sagði hann „köld byssa“ sem þýðir að hún átti að vera tóm.
Sjá einnig: Vopnavörðurinn segir einhvern hafa sett skot í byssuna
Skot hljóp úr byssunni þegar verið var að æfa tökur fyrir atriði þar sem Baldwin dró skammbyssu hratt úr slíðri og hljóp skot úr henni. Baldwin segist ekki hafa tekið í gikk byssunnar. Lögmaður Halls sendi yfirlýsingu til ABC þar sem aðstoðarleikstjórinn tók undir með Baldwin og sagði hann ekki hafa tekið í gikk byssunnar.
Sjá einnig: „Ég tók ekki í gikkinn,“ segir niðurbrotinn Baldwin
Sérfræðingar segja tæknilega mögulegt að skot hlaupi af úr byssum eins og þeirri sem Baldwin var með en það sé mjög sjaldgæft. Byssan var endurgerð af Pietta skammbyssu en til að skjóta úr henni þarf að draga hamarinn til baka og kreista gikk byssunnar. Það gerðist hins vegar með þær byssur að skot hljóp úr henni og á árum áður var reglulegt að eigendur þeirra hefðu ekki skot í því hólfi sem var undir hamrinum.

Í viðtalinu sagði Baldwin að skotið hefði hlaupið úr byssunni þegar hann dró hamarinn aftur og sleppti honum. Við það hafi skot hlaupið úr byssunni. Byssublaðaðamaðurinn bandaríski Stephen Gutowski segir þó í greiningu sinni að það sé gífurlega ólíklegt, miðað við það hvernig byssu hann var með. Mun líklegra að sé að Baldwin hafi tekið í gikkinn fyrir mistök.
Þá sagði Baldwin að Hutchins sjálf hafi sagt honum að miða byssunni að henni á toga í hamarinn þegar hann dró hana upp.
Fréttamaðurinn George Stephanopoulos sagði þá að maður ætti aldrei að beina byssu beint að öðrum á kvikmyndasetti og þá svaraði Baldwin: „Nema manneskjan sé tökustjóri sem sé að leiðbeina þér hvert þú átt að beina byssunni fyrir sjónarhorn myndavélarinnar.“
Baldwin fór fögrum orðum um Hutchins og sagðist hafa elskað að vinna með henni. Allir hafi elskað hana og dást að hæfileikum hennar.
Sagðist ekki vera fórnarlamb
Þá sagðist leikarinn hafa farið í viðtalið hjá ABC til að kveða niður orðróm um banaskotið og til að ítreka að hann myndi gera allt sem hann gæti til að taka til baka það sem hefði gerst. Baldwin ítrekaði einnig að vildi ekki líta út eins og fórnarlamb. Hutschins og Souza væru fórnarlömbin.
Aðspurður sagðist hann ekki finna fyrir sektarkennd.
„Ég hefði mögulega svipt mig lífi ef ég teldi mig bera ábyrgð á þessu.“
Áhugasamir geta horft á viðtalið, sem er í þremur hlutum, hér að neðan.
Býst ekki við að verða ákærður
Baldwin sagðist ekki telja að hann yrði ákærður vegna banaskotsins en yfirvöld í Santa Fe hafa sagt að allt sé á borðinu í þeim efnum. Rannsókn eigi að leiða í ljós hvort tilefni sé til ákæra.
Lögreglan hefur sagt að öryggisráðstöfunum vegna skotvopna hafi ekki verið framfylgt fyllilega á tökustaðnum og var hald lagt á um fimm hundruð skot. Þar á meðal púðurskot, tóm skothylki og hefðbundin skot, sem eiga ekki að finnast á tökustað.
Starfsmenn höfðu einnig kvartað undan öryggisráðstöfunum og sparnaði og nokkrum klukkustundum fyrir banaskotið lögðu nokkrir þeirra niður störf.
Baldwin, sem var einn af framleiðendum kvikmyndarinnar, sagðist aldrei hafa heyrt af slíkum kvörtunum. Hann sagðist einnig ekki telja að sparnaður við framleiðslu kvikmyndarinnar hefði dregið úr öryggi á tökustað.
Atvikið hefur leikið Baldwin illa og sagðist hann eiga mjög erfitt með svefn. Hann dreymi sífellt byssuskot og vakni ítrekað. Hann hefði ekki sofið almennilega í margar vikur.
Þá sagði hann mögulegt að ferli hans í leiklist væri lokið. Hann gæti ekki ímyndað sér að leika aftur í kvikmynd þar sem byssur kæmu við sögu. Núna væri honum skítsama um feril sinn.