Divock Origi var hetja Liverpool er liðið vann 1-0 útisigur á Wolves í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Besta færi leiksins fékk Diogo Jota eftir glórulaust úthlaup José Sá, markvarðar Wolves. Jota óð með boltann inn í markteig áður en hann gjörsamlega þrumaði honum í Conor Coady sem stóð á marklínunni.
Varamaðurinn Divock Origi fékk hins vegar sendingu frá Mo Salah í blálokin á uppbótartíma leiksins, Origi náði einhvern veginn að snúa þrátt fyrir að fá boltann með bakið í markið og koma knettinum í kjölfarið í netið.
90+4' - YES, YES, YES, YES!!!! Salah does brilliantly to cut the ball back and Origi takes a touch before firing low past Sa. What a moment!
— Liverpool FC (@LFC) December 4, 2021
[0-1]#WOLLIV https://t.co/tKhLSXDiV4
Reyndist þetta eina mark leiksins og Liverpool vinnur því dramatískan 1-0 sigur.