Verðbúðin fjallar um vini sem búa vestur á fjörðum og fara í sjávarútvegsbransann árið 1983 þegar kvótakerfið er að verða til.
„Við fylgjum því hvernig þau þróast samhliða því sem kvótkerfið er að festa sig í sessi á árunum 1983 til 1991. Það er tímaspan seríunnar,“ segir Gísli Örn Garðarsson, leikstjóri og einn aðalleikara seríunnar.
Á samfélagsmiðlinum Twitter hefur fólk deilt fyrstu viðbrögðum sínum við þáttaröðinni.
Guðni Halldórsson kvikmyndaklippari hafði sínar efasemdir um að hægt væri að gera gott sjónvarpsefni um kvótakerfið en virðist nú sannfærður.
Ekki datt mér í hug að það væri hægt að gera kvótakerfi og fiskveiðar að skemmtilegu sjónvarpsefni, og hafði mjög litlar væntingar. En vel gert Vesturport, mjög gott #verbúðin
— Gudni Halldórsson (@GudniKlipp) December 26, 2021
Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður á RÚV, hlakkar til framhaldsins og segir einfaldlega „bravó“.
Frábær byrjun á #verbúðin! Gott að hafa eitthvað til að hlakka til í janúar/febrúar skammdeginu. Senan með Nínu, Gísla og Selmu var stórkostlega skrifuð og leikin. Bravó!
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) December 26, 2021
Björn Teitsson, kynningarstjóri Krabbameinsfélagsins, segir fyrsta þáttinn fá fullt hús í flokknum Íslenskar kvikmyndir og sjónvarpssefni.
mikið reykt
— Björn Teitsson (@bjornteits) December 26, 2021
landsbyggðin alveg ómöguleg
framhjáhöld
ógeðsdrykkur/ógeðsmatvæli
óhemjumikið fyllerí
gríðarlegur harmur
Fullt hús í flokknum Íslenskar kvikmyndir og sjónvarpsefni #verbúðin
Blaðamaður hefur ekki enn séð fyrsta þáttinn, enda í vinnunni, en í honum virðist vera nokkuð mikið um nekt. Það hefur vakið kátínu netverja.
Stefán Hrafn Hagalín, deildarstjóri samskipta hjá Landspítala, gefur þættinum fjórar stjörnur af þeim sökum.
Typpi. #verbúðin
— Stefán Hrafn Hagalín (@StefanHagalin) December 26, 2021
Hrafn Jónsson bendir á að fjöldi sýnilegra kynfæra í þættinum minni á einn dáðasta leikara þjóðarinnar.
Verbúðin er að skora mjög hátt á Hilmis Snæs kvarðanum yfir sýnileg kynfæri.
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) December 26, 2021
Fyrsta typpið var ekki lengi að láta sjá sig.
45 sekúndur búnar...eitt typpið komið..lofar góðu #verbúðin
— Gudni Halldórsson (@GudniKlipp) December 26, 2021
Þó eru ekki allir jafnánægðir með nektina og vara við áhorfi með foreldrum.
það er ógeðslega vandræðalegt að horfa á #verbúðin með mömmu og pabba, hjálp
— Lilja Dögg (@LiljaDgg3) December 26, 2021
Þá vekur athygli hversu dugleg Harpa, leikin af Nínu Dögg Filippusdóttur, er að fara út að hlaupa.
Skrefateljara á Hörpu hlaupara #verbúðin
— Steinunn (@SteinunnVigdis) December 26, 2021
Harpa verður búin að hlaupa 5km áður en þessi þáttur er búinn #verbúðin
— Eva Karls (@evakarls) December 26, 2021
Besti fyrsti þáttur af íslenskri sjónvarpsseríu sem sést hefur. Ekta sósíalrealismi en líka drullu fyndið! Hlakka til að sjá Hörpu taka yfir bæinn á skokkinu #verbúðin
— Laufey Haralds (@LaufeyH) December 26, 2021
Hér að neðan geta þeir sem ekki hafa gert upp við sig hvort horfa eigi á Verbúðina séð stiklu úr þáttunum: