Bielsa rekinn frá Leeds Atli Arason skrifar 27. febrúar 2022 11:34 Bielsa á hliðarlínunni. vísir/Getty Leeds United staðfesti rétt í þessu að Marcelo Bielsa hafi verið rekinn úr stöðu knattspyrnustjóra liðsins.
Hinn 66 ára Bielsa hefur verið stjóri Leeds í tæp fjögur ár en hann tók við stjórn Leeds í júní 2018. Á fyrsta tímabili Bielsa með Leeds fór liðið alla leið í umspil um laust sæti í úrvalsdeildinni en tókst ekki að komast upp. Liðið komst hins vegar beint upp í úrvalsdeildina með því að vinna ensku B deildina á öðru tímabili Bielsa með Leeds. Leeds náði frábærum árangri á sínu fyrsta tímabili í efstu deild í 16 ár í fyrra þegar liðið endaði í níunda sæti, sem er besti árangur nýliða í úrvalsdeildinni á þessari öld. Leeds hefur ekki gengið vel á þessu tímabili en ekkert lið hefur fengið fleiri mörk á sig til þessa í deildinni en liðið varð það fyrsta til að fá 20 mörk á sig í einum og sama mánuðinum eftir 4-0 tapið gegn Tottenham í gær. „Þessi ákvörðun hefur verið sú erfiðasta sem ég hef tekið á mínum tíma hjá Leeds United, með allan þann frábæra árangur sem Marcelo hefur náð hjá félaginu í huga,“ sagði Andrea Radrizzani, eigandi Leeds, í tilkynningu sem var að berast frá félaginu. „Hins vegar, með hagsmuni félagsins í huga þá tel ég að þörf er á breytingu núna til þess að tryggja stöðu okkur í úrvalsdeildinni. Úrslitin og frammistaðan undanfarið hefur ekki mætt okkar kröfum.“ „Við viljum þakka Marcelo fyrir alla hans vinnu og árangur með liðinu. Við óskum honum alls hins besta í framtíðinni.“
Enski boltinn Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Sjá meira