Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) jókst sömuleiðis úr 2,3 milljörðum króna í 3,3 milljarða króna milli ára og var í samræmi við langtímamarkmið fyrirtækisins.
Að sögn stjórnenda einkenndist árið stórum hluta af góðum vexti og miklum fjárfestingum í húsnæði og búnaði en fyrirtækið tók nýverið í gagnið nýja framleiðslulínu. Þetta kemur fram í ársreikningi Ölgerðarinnar fyrir fjárhagsárið sem lauk 28. febrúar síðastliðinn.
Á markað fyrir lok mánaðar
Stjórn fyrirtækisins tók ákvörðun um það í september að hefja undirbúning að skráningu félagsins á aðallista Kauphallar Íslands og er stefnt að skráningu undir lok þessa mánaðar. Gert er ráð fyrir því að skráningin muni styðja áframhaldandi vöxt félagsins.
Fram kom í dag að samhliða skráningunni verði 25 til um 30 prósenta hlutur í félaginu boðinn til sölu, samkvæmt heimildum Innherja.
Samkvæmt heimildum miðilsins er horft til þess að miðað við gengið sem verður ákvarðað í útboðinu þá muni fást á bilinu um sex til sjö milljarðar króna fyrir sölu á 25 til 30 prósenta hlut. Hlutafé Ölgerðarinnar yrði því verðmetið nálægt 25 milljörðum króna en heildarvirði félagsins – hlutafé að meðtöldum vaxtaberandi skuldum – væri hins vegar nokkuð yfir 30 milljarðar króna.
Ný framleiðslulína fjórfaldað afkastagetu
„Það er afar ánægjulegt að sjá niðurstöðuna eftir það erfiða ástand sem skapaðist í kringum Covid og eftirköst faraldursins og við erum einstaklega stolt af þeim árangri sem við náðum á nýliðnu rekstrarári. Eins og áður er það starfsfólkið sem myndar grunninn að þessari velgengni ásamt gæðavörum fyrirtækisins sem Íslendingar þekkja og kunna að meta og nýjungum í vöruþróun,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, í tilkynningu.
Ný framleiðslulína sem hafi verið reist á einungis níu mánuðum hafi fjórfaldað afkastagetuna og gefi fjölmörg tækifæri til áframhaldandi þróunar. Andri bætir við að Ölgerðin hafi jafnframt keypt birgjasambönd Ásbjörns Ólafssonar ehf. sem hafi styrkt stöðu fyrirtækisins.
„Áfram verður lögð áhersla á að viðhalda þeim gæðum sem vörur okkar eru þekktar fyrir og öfluga vöruþróun,“ segir Andri. Ölgerðin gerir nú upp í fyrsta sinn í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af ESB.