City afhjúpar styttu af Agüero í tilefni af tíu ára afmæli marksins fræga Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. maí 2022 19:45 Styttan afhjúpuð. Tom Flathers/Manchester City FC via Getty Images Englandsmeistarar Manchester City afhjúpuðu í dag styttu af Sergio Agüero fyrir utan Etihad völlinn í tilefni af því að í dag eru tíu ár síðan leikmaðurinn tryggði liðinu Englandsmeistaratitilinn í uppbótartíma í lokaumferð tímabilsins.
Þetta var fyrsti Englandsmeistaratitill félagsins síðan árið 1968 og það má með sanni segja að dramatískari verða sigrarnir líklega ekki. Liðið þurfti sigur gegn QPR í lokaumferðinni til að hafa betur gegn nágrönnum sínum í Manchester United í baráttunni um titilinn. Heimamenn í City voru 2-1 undir þegar venjulegum leiktíma lauk, en Edin Dzeko jafnaði metin á annarri mínútu uppbótartíma áður en Sergi Agüero skoraði sigurmarkið eftirminnilega tveimur mínútum síðar. Markið tryggði liðinu Englandsmeistaratitilinn, en aðeins markatalan skildi Manchester liðin að þetta tímabilið. Sergio Aguero at the unveiling of his new statue outside the Etihad 💙 pic.twitter.com/4Gehf0JuIH— GOAL (@goal) May 13, 2022 „Þetta var besta stund lífs míns,“ sagði Agüero þegar styttan var afhjúpuð. „Þetta augnablik breytti lífi mínu. Það breytti klúbbnum og öllu. Þetta augnablik verður alltaf nálægt hjarta mínu.“ „Við vitum ekki hvað hefði gerst ef við hefðum ekki unnið titilinn þetta ár. Þetta breytti öllu af því að á næstu árum þá fórum við að vinna fleiri titla,“ sagði Argentínumaðurinn að lokum.
Enski boltinn Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Sjá meira