De Bruyne um Sterling: Gæti ekki verið ólíkari en ímynd hans í slúðurblöðunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. maí 2022 13:30 Kevin De Bruyne og Raheem Sterling fagna saman nmarki Manchester City á Turf Moor. Getty/Matt McNulty Raheem Sterling fær mjög ósanngjarna meðferð hjá breskum fjölmiðlum ef marka má liðsfélaga hans og stórstjörnu hjá Manchester City.
Kevin De Bruyne talar mjög vel um Sterling í Players Tribune en þeir hafa unnið ófáa titlana saman sem lykilmenn hjá City. „Áður en ég kom til Manchester City þá vissi ekki hvað ég átti að halda um þennan Raheem Sterling gæja. Ég hafði aldrei hitt hann og aðeins lesið um hann í blöðunum. Þeir héldu því fram að hann væri hrokagikkur og ég hélt að hann væri svona týpa eins og Englendingarnir kalla skíthaus,“ sagði Kevin De Bruyne við The Players' Tribune Football. View this post on Instagram A post shared by GiveMeSport (@givemesport) „Ég og Raheem náum mjög vel saman. Við komum til liðsins á sama tíma og það var mikil neikvæðni í kringum okkur báða. Ég var rusl frá Chelsea og hann var þessi ósmekklegi náungi sem hafði yfirgefið Liverpool fyrir peninga,“ sagði De Bruyne. „Þegar þú lest svona um sjálfan þig þá hugsar þú: Þetta er fáránlegt, þetta fólk þekkir mig ekki einu sinni, en þetta hefur aftur á móti áhrif á það hvernig þú sér aðra leikmenn,“ sagði De Bruyne. „Ég á ekki marga nána vini og það tekur mig langan tíma að opna mig fyrir fólki. Ég náði hins vegar að kynnast Raheem og synir okkar fæddust á sama tíma. Hann gæti ekki verið ólíkari en ímyndin hans í slúðurblöðunum,“ sagði De Bruyne. Kevin De Bruyne og Raheem Sterling eru tveir markahæstu leikmenn Manchester Cty í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili, De Bruyne með 15 mörk og 7 stoðsendingar og Sterling með 12 mörk og 5 stoðsendingar. Báðir eru þeir á góðri leið með því að vinna enska meistaratitilinn í fjórða skiptið með liði Manchester City.
Enski boltinn Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Sjá meira