Lingard nálgast nýliða Nottingham Forest Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 21. júlí 2022 14:15 Nær Jesse Lingard að lífga upp á ferilinn hjá nýliðunum. Manchester United/Manchester United via Getty Images Jesse Lingard, fyrrverandi sóknarmaður Manchester United, er nálægt því að samþykkja samningstilboð frá nýliðum Nottingham Forest.
Þessi 29 ára knattspyrnumaður hefur verið á mála hjá United í rúma tvo áratugi. Hann lék með yngri liðum félagsins og hefur haldið sig þar frá árinu 2000. Samningur hans við United var ekki endurnýjaður þegar hann rann út í seinasta mánuði og Lingard hefur því verið að leita sér að nýju liði. Hann hefur verið orðaður við Everton og West Ham, en hann var á láni hjá þeim síðarnefndu seinni hluta timabilsins 2020/2021. Þar blómstraði leikmaðurinn og skoraði níu mörk í 16 leikjum. Nú virðist Lingard hins vegar vera að ganga í raðir nýliða Nottingham Forest, en samkvæmt heimildum BBC er sá samningur ekki alveg í höfn. Former Man Utd attacking midfielder Jesse Lingard is close to signing for Nottingham Forest on a free transfer.#MUFC #BBCFootball #NFFC— BBC Sport (@BBCSport) July 21, 2022 Lingard var lengi vel talinn mikið efni, en ferill hans hefur ekki náð því flugi sem búist var við. Alls lék hann 149 deildarleiki fyrir United og skoraði í þeim 20 mörk. Á seinasta tímabili lék hann 22 leiki fyrir félagið, en var aðeins fjórum sinnum í byrjunarliðinu. Þá á Lingard einnig að baki 32 leiki fyrir enska landsliðið þar sem hann hefur skorað sex mörk.
Enski boltinn Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Sjá meira