Hópur fólks hafi komist til valda með offorsi og eineltistilburðum Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 11. ágúst 2022 19:00 Þórarinn er afar svartsýnn á framtíð ASÍ. skjáskot/Stöð 2 Formaður Öldunnar, stéttarfélags innan Alþýðusambandsins (ASÍ), segir framtíð verkalýðshreyfingarinnar svarta eftir sviptingar innan hennar undanfarið. Hann segir hóp fólks hafi komist til valda með offorsi og eineltistilburðum, sem fáir séu spenntir að vinna með.
Það dró til tíðinda þegar Drífa Snædal tilkynnti afsögn sína sem forseti ASÍ í gærmorgun. „Ég er náttúrulega dapur og leiður yfir þessu og finnst skelfilegt að það skuli vera komið svo að hún hrekist úr starfi vegna... eigum við ekki bara að kalla þetta einelti og ofbeldi sem hún hefur orðið fyrir. Mér hefur fundist það vera þannig í hennar garð,“ segir Þórarinn Sverrisson, formaður Stéttarfélagsins Öldu. Þar vísar hann til hóps sem hefur myndast innan verkalýðshreyfingarinnar, sem Drífa sagði í gær að væri ástæða afsagnar sinnar. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Vilhjálmur Birgisson, nýkjörinn formaður Starfsgreinasambandsins (SGS), fara þar fremst en Drífa hefur nefnt fleiri foringja stéttarfélaga sem fylgja þeim. Þórarinn hjá Öldu tapaði einmitt fyrir Vilhjálmi í formannskjöri SGS í vor. Hann lýsir sinni upplifun af vinnubrögðum hinna: „Þau hafa verið með ómálefnalega nálgun á þau málefni sem hafa verið í gangi. Við höfum oft og tíðum orðið fyrir því að menn hafa ekki fengið að ræða málin af því að það er einhver afstaða sem að þau taka og telja út úr kort að vera að hana eitthvað frekar. Ég er nú þannig gerður að ég vil alltaf hlusta og skoða það sem aðrir hafa fram að færa, líka þau ekkert síður en aðrir, og mér finnst alltaf betra að heyra andstæð sjónarmið heldur en ekki þegar maður er að velta fyrir sér hvaða afstöðu er best að taka. En þetta hefur ekki gengið því miður og ég verð að segja að ég skil afstöðu Drífu um að segja af sér. Það er engum bjóðandi að vinna undir þessu.“ En hvernig horfir Þórarinn á framhaldið innan ASÍ? „Mér finnst það dökkt. Mér finnst það bara þannig og ég tel að þetta muni veikja hreyfinguna sem heild alveg gríðarlega, hvernig fólk er að fara fram. Það er þessi valdataka sem þarna hefur orðið, kannski ekki með beinum hætti en með þessum ólátum og linnulausu gagnrýni á eitthvað sem þarf kannski ekki að gagnrýna. Og gera menn að óvinum sínum og óvinum launafólks… að tala fyrir því að við sem höfum vilja ræða hlutina séum á móti launafólki, þetta er auðvitað alveg stórskrýtin nálgun og ég skil ekki hvernig fólk yfir höfuð nennir að hlusta á fólk sem að hefur svona í frammi,“ segir hann. Útiloka ekki að semja sjálf í haust Óvíst er hvaða áhrif þessar deilur munu hafa á komandi kjarasamningsviðræður en kjarasamningar verða lausir í nóvember næstkomandi. Stéttarfélag Vesturlands sendi í apríl frá sér harðorða ályktun eftir fund trúnaðarráðs félagsins þar sem hópuppsagnir Eflingar í vor voru fordæmdar. Þar segir: „Stéttarfélag Vesturlands vill ekki eiga í neinum samskiptum við þau verkalýðsfélög sem láta þetta háttalag Eflingar átölulaust.“ Í samtali við fréttastofu í dag sagði Signý Jóhannesdóttir, formaður Stéttarfélags Vesturlands, að hópurinn í kring um Sólveigu hefði alls ekki fordæmt hópuppsagnirnar á nægilega afgerandi hátt. Þar á meðal er SGS sem hefur iðulega farið sem samningsumboð undirfélaga sinna í kjaraviðræðum. Signý sagði það þó verða líklegra með hverjum deginum að félagið veitti SGS ekki sitt umboð í þetta skiptið og gengi til samningaborðsins með eigin samninganefnd. Þórarinn útilokar ekki að Aldan fari sömu leið en segir að það verði félagið að skoða betur á næstu vikum og taka ákvörðun um það innan stjórnar.
Stéttarfélög Kjaramál Vinnumarkaður ASÍ Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira