Umfjöllun: KA/Þór-Haukar 26-25 | Naumur sigur heimaliðsins Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. september 2022 18:31 Rut Arnfjörð Jónsdóttir skoraði fimm mörk í liði KA/Þórs. Vísir/Hulda Margrét KA/Þór vann nauman eins marks sigur á Haukum í Olís deild kvenna i handbolta í dag, lokatölur 26-25.
Leikurinn var æsispennandi en Akureyringar voru þó alltaf hænuskrefi á undan. KA/Þór skoraði, Haukar jöfnuðu, KA/Þór skoraði, Haukar jöfnuðu. Svona var leikurinn í upphafi eða allt þangað til heimaliðið komst í tveggja marka forystu um miðbik fyrri hálfleiks. Undir lok fyrri hálfleiks tókst Haukum hins vegar að minnka muninn í eitt mark og var staðan 11-10 er flautað var til hálfleiks. Hægt og rólega náði KA/Þór að auka forystu sína í síðari hálfleik. Haukar voru þó aldrei langt undan en munurinn var mest þrjú mörk. Haukar náðu áhlaupi undir lok leiks en tókst ekki að jafna metin, lokatölur 26-25 og sigur Akureyringa staðreynd. Var þetta fyrsti sigur KA/Þórs á mótinu en liðið tapaði með eins marks mun fyrir ÍBV í fyrstu umferð. Haukar hafa á sama tíma tapað báðum sínum leikjum. Rut Arnfjörð Jónsdóttir og Lydía Gunnþórsdóttir voru markahæstar í liði KA/Þórs með fimm mörk hvor á meðan Matea Lonac fór hamförum í markinu. Alls varði hún 20 skot. Elín Klara Þorkelsdóttir var allt í öllu í liði Hauka en hún skoraði níu mörk. Þá varði Margrét Einarsdóttir 10 skot í markinu. KA/Þór mætir Stjörnunni í næstu umferð á meðan Haukar fá nýliða Selfoss í heimsókn.
Handbolti Olís-deild kvenna KA Þór Akureyri Haukar Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti Fleiri fréttir Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Sjá meira