Björn Kristjánsson spilar ekki meira með KR á leiktíðinni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. nóvember 2022 20:01 Björn Kristjánsson í leik með KR. Vísir/Bára Björn Kristjánsson hefur spilað sinn síðasta leik fyrir KR í Subway deild karla í körfubolta í bili. Hann var heiðraður með blómvendi fyrir leik liðsins gegn Val í gærkvöld en hann glímir við veikindi sem halda honum nú frá keppni.
Hinn 30 ára gamli Björn var hluti af sigursælu liði KR-inga og ljóst er að hans er sárt saknað um þessar mundir en það gengur hvorki né rekur í Vesturbænum. KR mátti þola vandræðalegt tap þegar Íslandsmeistarar Vals komu í heimsókn í gærkvöld og lengi virðist vont ætla að versna í Frostaskjóli. Fyrir leik gærdagsins var Björn heiðraður og í dag tilkynnti KR formlega á vefsíðu sinni að Björn myndi ekki spila meira á þessari leiktíð. Raunar er óvíst hvort hann geti spilað körfubolta aftur en ítarlegt viðtal við Björn birtist á Vísi í fyrramálið, þriðjudaginn 22. nóvember. „Allir muna eftir 3ja stiga körfu gegn Haukum sem tryggði KR í úrslitin árið 2018 en Bjössi hefur aldrei verið hræddur við stóru stundirnar þar sem mikið var undir. Björn er frábær félagsmaður, góður liðsfélagi og sigurvegari að KR sið,“ segir á vef KR um leikmanninn. Kristófer Acox, fyrrverandi leikmaður KR og núverandi Íslandsmeistari, skilaði kveðju á góðvin sinn Björn að leik loknum í gær: „Til hamingju með frábæran feril. Ég elska þig Björn. Gangi þér vel í vetur.“ Alls varð Björn fjórum sinnum Íslandsmeistari með KR og einu sinni bikarmeistari.
Körfubolti Subway-deild karla KR Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Fótbolti Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM Fótbolti HM-dómarinn sem var rekinn heim fékk hetjumóttökur Sport Fleiri fréttir Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Sjá meira