Jól

Jóla­daga­tal Vísis: Tísku­­mynd­band varð að tón­listar­­mynd­bandi með vin­­sælustu hljóm­­sveit landsins

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Ellen Loftsdóttir stílisti leikstýrði myndbandi hljómsveitarinnar GusGus ásamt Þorbirni Ingasyni.
Ellen Loftsdóttir stílisti leikstýrði myndbandi hljómsveitarinnar GusGus ásamt Þorbirni Ingasyni.

5. desember er runninn upp og við fögnum því með fersku lagi úr Jóladagatali Vísis. Lag dagsins er sannarlega ekki af verri endanum. Að okkar mati er um að ræða fullkomið mánudagslag til að koma okkur í rétta gírinn og hrista af okkur mögulegt slen eftir helgina.

Lagið Over með stórhljómsveitinni Gusgus er lag dagsins. 

Myndbandið var upphaflega hugsað sem tískustuttmynd fyrir Guðmund Jörundsson fatahönnuð og hugmyndin var að tvinna það saman við tónlist frá GusGus. 

„Þetta endaði svo í að gera heljarinnar tónlistarmyndband við lagið Over. Við vorum svo heppin að fá kvikmyndatökumanninn Karl Óskarsson með okkur í lið, sem er hokinn af reynslu á þessu sviði," sagði Ellen Loftsdóttir stílisti sem leikstýrði myndbandinu ásamt Þorbirni Ingasyni. Tökur á myndbandinu fóru fram á strandlengjunni milli Þorlákshafnar og Eyrarbakka

Hér má lesa umfjöllun Vísis um myndbandið frá árinu 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×