Jól

Jóla­daga­tal Vísis: At­riði sem lífgar pott­þétt upp á jóla­boðið

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Lagið Nessun Dorma er kannski ekki á allra færi. Kristján Jóhannsson er heldur ekki hver sem er og gjörsamlega neglir það.
Lagið Nessun Dorma er kannski ekki á allra færi. Kristján Jóhannsson er heldur ekki hver sem er og gjörsamlega neglir það. Mynd/gva

15.desember er runninn upp. Þessi fimmtudagsmorgun var óneitanlega í kaldari kantinum enda sannkölluð kuldatíð gengin í garð. Það þýðir þó ekki að við ætlum að láta deiga síga í Jóladagatali Vísis heldur þvert á móti. Lag dagsins er hin ódauðlega aría Nessun Dorma í stórkostlegum flutningi Kristjáns Jóhannssonar.

Friðrik Grétarson leikstýrði myndbandinu sem var framleitt af Geir Ólafssyni. Kristján sýnir sínar bestu hliðar og slær ekki feilnótu frekar en nokkru sinni. Söngurinn er kannski ekki beint fyrir hvern sem er til að leika eftir. Það gæti þó verið hin besta skemmtun í komandi jólaboðum að reyna við lagið ef stemningin er eitthvað dauf. Við þorum að ábyrgjast að það myndi hressa upp á stemninguna - við mönum þig til að prófa.

Lag dagsins er Nessun Dorma með Kristjáni Jóhannsyni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×