Bíó og sjónvarp

Cruise stökk fram af fjalli á mótorhjóli

Samúel Karl Ólason skrifar
TC1

Leikarinn víðfrægi, Tom Cruise, hefur lengi verið þekktur fyrir að gera eigin áhættuatriði í kvikmyndum sínum og þá sérstaklega í Mission Impossible myndunum. Í þeim myndum hefur hann meðal annars klifrað utan á hæstu byggingu heims og sveiflað sér á milli háhýsa.

Verið er að taka upp tvær næstu myndir Mission Impossible seríunnar og kallast þær Mission Impossible – Dead Reckoning part 1 og part 2. Paramount Pictures birti nýverið myndband þar sem fjallað er um áhættuatriði sem lýst er sem því „stærsta“ í kvikmyndasögunni. Í þessu atriði ekur Tom Cruise mótorhjóli fram af fjalli í Noregi og svífur til jarðar í fallhlíf.

Myndbandið sýnir meðal annars þann mikla undirbúning sem áhættuatriði sem þetta þarfnast og þær miklu æfingar sem Cruise leggur á sig fyrir tökurnar. Á tökudeginum sjálfum stökk hann svo minnst sex sinnum fram af fjallinu.

Paramount birtu einnig myndband þar sem Cruise þakkaði fólki fyrir móttökurnar sem Top Gun Maverick fékk í kvikmyndahúsum um heiminn allan. Í því myndbandi sendir Cruise fólki kveðju þar sem hann hangir fyrst utan á flugvél og svo fellur til jarðar í frjálsu falli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.