Musk hefur gert miklar breytingar á samfélagsmiðlinum frá því hann var þvingaður til að standa við kaupsamning sem hann skrifaði undir en reyndi að losna undan. Meðal þess er að hann hefur sagt upp stórum hluta starfsmanna Twitter og hleypa umdeildu fólki sem hafði verið bannað á samfélagsmiðlinum aftur þar inn.
Þar á meðal eru alræmdir rasistar og öfgamenn.
Sjá einnig: Musk hyggst hætta þegar arftakinn er fundinn
Samkvæmt frétt Wall Street Journal eru um sjötíu prósent af hundrað stærstu auglýsendum Twitter þegar Musk tók við, ekki lengur að auglýsa á samfélagsmiðlinum. Það er mikið vandamál fyrir Musk.
Miðillinn segir að það sé vandamál vegn þess að í fyrra komu um 89 prósent af tekjum Twitter í gegnum auglýsingar. Í heild voru tekjurnar 5,1 milljarður dala í fyrra en Musk hefur sagt að hann vilji draga úr því hvernig Twitter reiðir á auglýsingar og hefur opnað áskriftarþjónustu.
Sjá einnig: Musk vill takmarka kannanir við áskrifendur Twitter
Heimildarmenn WSJ innan veggja Twitter segja að undirmenn Musks hafi leitað til auglýsenda og reynt að sefja ótta þeirra og vekja áhuga á samfélagsmiðlinum.
Meðal annars hafa þeir lofað breytingum eins og að notendur muni getað keypt vörur beint í gegnum auglýsingar, myndbandskerfi Twitter verði betra og að þróað verði kerfi til að koma í veg fyrir að auglýsingar birtist nærri tístum sem þykja hneykslanleg eða sem auglýsendur vilja ekki láta bendla vörumerki sín við.
Einhverjir vilja breytingar hjá Twitter áður en þeir byrja aftur að auglýsa þar og vísa auglýsendur meðal annars til hegðunar Musks og aðgerða sem eigandi og forstjóri Twitter. Þar á meðal annars við umdeild tíst hans og skyndilegar reglubreytingar á samfélagsmiðlinum.
Musk hefur meðal annars hótað að opinbera hvaða fyrirtæki hætta að auglýsa á Twitter svo þeir geti verið gagnrýndir opinberlega.
Sjá einnig: Skuldir Twitter stigmagnast við yfirtöku Musks
Ætlar að hringja persónulega
Musk er sagður ætla að hringja persónulega í stærstu auglýsendur Twitter og ræða við þá um hvernig hægt sé að fá þá til að auglýsa aftur á Twitter, samkvæmt tölvupósti sem blaðamenn WSJ hafa séð.
CNBC sagði nýverið frá því að metorðamaður innan auglýsingageirans vestanhafs væri þeirrar skoðunar að auglýsendur myndu snúa aftur til Twitter. Flestir vildu bíða og sjá hvað gerðist á Twitter og að margir vildu breytingar.
Framvindan myndi stjórnast af því hvort óreiðan myndi ríkja á Twitter eða hvort einhver ritstjórn yrði á samfélagsmiðlinum.