Spenntur að fara loks á stórmót: „Var frekar vongóður í þetta skiptið“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. janúar 2023 11:31 Óðinn Þór Ríkharðsson kvaðst vongóður að verða valinn í HM-hópinn og sú ósk hans rættist. stöð 2 sport Óðinn Þór Ríkharðsson kveðst spenntur að vera loksins á leið á stórmót með íslenska landsliðinu í handbolta.
Óðinn er í nítján manna hópnum sem Guðmundur Guðmundsson valdi fyrir HM sem hefst 12. janúar. Hornamaðurinn kveðst hafa verið bjartsýnn að verða valinn í HM-hópinn. „Það kom mér ekki á óvart. Ég var frekar vongóður í þetta skiptið. Það er bara frábær heiður að vera í liðinu,“ sagði Óðinn í samtali við Vísi eftir æfingu landsliðsins í Safamýrinni í kvöld. Hann kveðst spenntur að fá loks tækifæri með landsliðinu á stærsta sviðinu eftir að hafa nokkrum sinnum verið nálægt því. „Þetta er frábær tilfinning. Ég hef vissulega mikið verið á brúninni. En þetta er mjög spennandi og gaman að vera valinn,“ sagði Óðinn. Hann gekk í raðir Kadetten Schaffhausen í Sviss frá KA fyrir tímabilið. Óðinn gat hins vegar ekki byrjað að spila strax með liðinu þar sem hann ristarbrotnaði. En núna er hann kominn á fullt aftur og hefur spilað undanfarnar vikur. „Ég er í flottu standi, þetta er gróið og mér líður vel,“ sagði Óðinn. Hann er sáttur með að hafa tekið þetta skref, að fara til Sviss. „Jú, þetta hefur gengið mjög vel og ég er ánægður með þetta skref. Ég er með íslenskan þjálfara [Aðalstein Eyjólfsson] og þetta er mjög fínt,“ sagði Óðinn að endingu. Viðtalið við hann má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Landslið karla í handbolta HM 2023 í handbolta Mest lesið Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Fótbolti Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Íslenski boltinn Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Vandræðaleg auglýsing og köld kveðja Sport Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Íslenski boltinn Heimsmeistari hélt að hún væri með tíðaverki en endaði á sjúkrahúsi Sport Fleiri fréttir Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Sjá meira