Lífið

Stjörnurnar fögnuðu í eftir­partýi Vanity Fair

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Stjörnurnar skinu skært í eftirpartýi Vanity Fair í nótt.
Stjörnurnar skinu skært í eftirpartýi Vanity Fair í nótt. Getty/Samsett

Að Óskarsverðlaunahátíðinni lokinni er kvöldið þó rétt að byrja hjá stjörnunum sem tínast í hin ýmsu eftirpartý. Langstærst er eftirpartý tímaritsins Vanity Fair en þangað flykkjast allar stærstu stjörnurnar.

Vanity Fair hefur haldið sitt árlega Óskarsverðlaunapartý frá árinu 1994. Partýið er þekkt fyrir að vera einn glæsilegasti og stjörnum prýddasti gleðskapur ársins. Þangað mæta allar helstu stjörnur Hollywood og fagna Óskarsverðlaunahöfunum og árinu í kvikmyndagerð.

Stjörnurnar láta þó að sjálfsögðu ekki sjá sig í sama klæðnaði og á verðlaunahátíðinni sjálfri, heldur hafa allir fataskipti áður en mætt er. Það ríkir því alltaf ákveðin spenna að sjá hverju stjörnurnar klæðast í partýinu.

Hér fyrir neðan má sjá brot af þeim lúkkum sem stjörnurnar buðu upp á í gær.

Austin Butler og Kaia Gerber voru glæsileg saman. Austin var tilnefndur sem besti leikari í aðalhlutverki og þótti sigurstranglegur. Að lokum var það þó Brendan Fraser sem fór heim með verðlaunagripinn fyrir hlutverk sitt í The Whale.getty/karwai tang
Hin dásamlega Jennifer Coolidge í hönnun Dolce & Gabbana.Getty/steve granitz
Fyrirsætan Cara Delevingne guðdómleg í þessum Del Core kjól.Getty/Jon Kopaloff
Brendan Fraser fór heim með Óskarsverðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í myndinni The Whale.Getty/steve granitz
Hailey Bieber hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið. Hún lét það þó ekki stoppa sig og mætti með vinkonum sínum í partý Vanity Fair.Getty/Amy Sussman
Kylie Jenner í silfurlituðum kjól eftir Maison Margiela.getty/karwai tang
Kendall Jenner glæsileg eins og alltaf en hún klæddist Jean Paul Gaultier.getty/karwai tang
Rebel Wilson skein eins og sólin.Getty/Daniele Venturelli
Hún mætti ásamt kærustu sinni Ramonu Agruma og virtust þær ansi lukkulega með hvor aðra.Getty/Daniele Venturelli
Heidi Klum - þvílík gyðja!Getty/Axelle/Bauer-Griffin
Florence Pugh var eitursvöl í þessu svarta og bleika dressi úr smiðju Valentino.Getty/steve granitz
Ke Huy Quan vann Óskarinn sem besti leikari í aukahlutverki. Hann fagnaði því að sjálfsögðu í partýi Vanity Fair.Getty/Amy Sussman
Ana de Armas í hönnun Louis Vuitton. Hún var tilnefnd sem besta leikkona í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt sem Marilyn Monroe en laut í lægra haldi fyrir Michelle Yeoh.getty/karwai tang
Fyrirsætan Hunter Schafer átti líklega eitt eftir eftirtektarverðustu lúkkum kvöldsins. Hún klæddist hönnun Ann Demeulemeester.getty/leon bennett
Megan Thee Stallion átti klárlega eitt af flottustu lúkkum kvöldsins. Hún klæddist Bach Mai og var sannkölluð gyðja.Getty/Leon Bennett
Fyrirsætan Emily Ratajkowsi vakti mikla athygli í þessum glitrandi Feben kjól.Getty/steve granitz
Hailee Steinfeld einstaklega töff í þessum gegnsæja kjól sem hún klæddist svo stórri yfirhöfn yfir.getty/john shearer
Cardi B klæddist rauðum Robert Wun kjól.Getty/Amy Sussman
Eva Longoria glæsileg eins og alltaf.Getty/Amy Sussman
Vanessa Hudgens var kynnir á rauða dreglinum fyrir Óskarinn. Hún lét sig því að sjálfsögðu ekki vanta í eftirpartýið.Getty/Jon Kopaloff
Olivia Rodrigo í Valentino.Getty/Amy Sussman
Gigi Hadid guðdómleg í rauðu.Getty/Amy Sussman
Hjónin Joe Jonas og Sophie Turner glæsileg í Louis Vuitton.Getty/Daniele Venturelli
Miranda Kerr geislaði í þessum fallega bláa kjól úr smiðju Elie Saab Haute Couture.Getty/steve granitz
Queen Latifah klæddist þessari fallegu dragt.Getty/Amy Sussman
Trevor Noah lét sig ekki vanta.Getty/Leon Bennett
Donald Glover var einn sá allra flottasti í þessum Alexander McQueen jakkafötum.Getty/steve granitz
Sarah Paulson í hönnun Nina Ricci.Getty/Daniele Venturelli
Julia Garner, sem sló í gegn sem svikahrappurinn Anna Delvey í þáttunum Inventing Anna, klæddist Off-White.Getty/Daniele Venturelli
Jessica Alba klæddist Carolina Herrera.getty/karwai tang
Gabrielle Union skein skært í þessum fallega Ralph Lauren kjól.getty/karwai tang
Olivia Wilde klæddist svörtum leðurbrjóstarhaldara og hvítum Gabriela Hearst kjól. Það er óhætt að segja að hún hafi tekið „off the shoulder“-lúkkið skrefinu lengra.getty/karwai tang
Lily James sem sló í gegn á síðasta ári í hlutverki Pamelu Anderson í þáttunum Pam & Tommy.getty/john shearer
Michelle Yeoh, besta leikkona í aðalhlutverki.Getty/Amy Sussman
Sofia Vergara stórglæsileg eins og alltaf.Getty/Daniele Venturelli
Hjónin Chrissy Teigen and John Legend létu sig ekki vanta.Getty/Jon Kopaloff
Tónlistarkonan Billie Eilish fór ekki framhjá neinum í þessum svarta kjól.getty/karwai tang

Tengdar fréttir

Óskarsvaktin 2023

Óskarsverðlaunin fara fram í kvöld í Dolby leikhúsinu þar sem allar skærustu stjörnur kvikmyndaheimsins koma saman og vonast eftir því að fara heim með gullstyttu. Dóra Júlía og Kristín Ólafsdóttir ætla að halda uppi vaktinni í nótt og fara með lesendum í gegnum rauða dregilinn og hátíðina. Dröfn Ösp Snorradóttir-Rozas er svo að lýsa hátíðinni í beinni á Stöð 2. 

Þetta eru sigur­vegarar Óskarsins 2023

Kvikmyndin Everything, Everywhere All At Once er ótvíræður sigurvegari Óskarsverðlaunahátíðarinnar 2023. Myndin hreppti sjö verðlaun, meðal annars fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki, leikstjórn og sem besta mynd. Þýska stríðsmyndin All Quiet on the Western Front kom næst á eftir með fern verðlaun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.