Edduverðlaunin eru veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni og voru þau fyrst veitt árið 1999. Gjaldgeng til verðlaunanna eru sjónvarps- og kvikmyndaverk sem sýnd voru opinberlega á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2022.
Salka og Sóli skemmtu salnum
Þau Salka Sól Eyfeld og Sólmundur Hólm voru kynnar Eddunnar. Þau skemmtu salnum til að mynda með rapplagi sem Salka flutti. Um var að ræða texta um íslenskar kvikmyndir sem Salka flutti undir laginu Players eftir Coi Leray.
Þá hló salurinn líka þegar Sólmundur, eða Sóli eins og hann er gjarnan kallaður, kom upp á svið eftir að Viktoría Hermannsdóttir fékk Edduverðlaunin fyrir sjónvarpsmanneskju ársins. „Djöfull er þetta heit gella maður, sem var að vinna hérna, vá. Ég ætla að redda mér númerinu hennar,“ sagði Sólmundur en þau Viktoría eru hjón.
„Ef þið haldið svona áfram þá get ég ekki hafið ræðuna!“
Heiðursverðlaun Eddunnar voru veitt Ágústi Guðmundssyni fyrir sitt mikilvæga og einstaka framlag til íslenskrar kvikmyndalistar. Salurinn fagnaði ákaft þegar tilkynnt var um að hann fengi verðlaunin. Ágúst fékk svo nóg af fagnaðarlátunum: „Ef þið haldið svona áfram þá get ég ekki hafið ræðuna!“
Fagnaðarlætin héldu svo áfram þegar Ágúst fór yfir breytingarnar sem hafa orðið síðan ferill hans hófst:
„Það fyrsta: Samkynhneigðir hafa verið teknir í sátt og nú finnst okkur furðulegt að það skyldi ekki hafa gerst löngu fyrr.
Númer tvö: Konur hafa bylt þjóðfélaginu en söngva- og gleðimyndin Með allt á hreinu sá það nú reyndar fyrir.
Þriðja byltingin er svo menningarbylting því hvaða listgrein hefur blómstrað betur en einmitt kvikmyndagerðin á þessu tímabili.“
Laufey einnig heiðruð
Laufey Guðjónsdóttir, fyrrverandi forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Ísland, var þá heiðruð á hátíðinni fyrir framlag sitt til geirans. Laufey sagði í þakkarræðu sinni að hún hefði nú ekki gert neitt nema mæta í vinnuna. Þá benti hún á hve mikil vinna felst í íslenskri kvikmyndagerð.
„Það er bæði sköpunarkrafturinn sem þarf, það er fagmennskan, ótrúleg þrautseigja og þor. Síðan til þess að fíra upp í þessu öllu saman er mjög mikilvægt að treysta á stuðning stjórnvalda sem hafa svo sannarlega staðið við bak greinarinnar.“
Verbúðin með flest verðlaun
Það er óhætt að segja að þau sem komu að Verbúðinni voru sigurvegar kvöldsins. Verbúðin var með alls sextán tilnefningar og vann til níu verðlauna.
Verbúðin vann til að mynda verðlaunin fyrir handrit ársins en þættirnir voru upphaflega ekki tilnefndir í þeim flokki. Eftir að ljóst varð að um mistök hafði verið að ræða var sjónvarpsþáttunum bætt við í flokkinn.
Hér fyrir neðan má sjá alla sigurvegarana og tilnefningarnar í öllum flokkunum. Sigurvegararnir eru feitletraðir.
Kvikmynd ársins:
Svar við bréfi Helgu
Sumarljós og svo kemur nóttin
Against the Ice
Berdreymi
Volaða land

Heimildamynd ársins:
Velkominn Árni
Út úr myrkrinu
Sundlaugasögur

Leikið sjónvarpsefni ársins:
Trom
Svörtu sandar
Randalín og Mundi: Dagar í desember
Brúðkaupið mitt
Verbúðin

Leikstjóri ársins:
Heimir Bjarnason - Þrot
Ása Helga Hjörleifsdóttir - Svar við bréfi Helgu
Guðmundur Arnar Guðmundsson - Berdreymi
Hlynur Pálmason - Volaða land
Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson & María Reyndal - Verbúðin

Leikari ársins í aðalhlutverki:
Þorvaldur Davíð Kristjánsson - Svar við bréfi Helgu
Birgir Dagur Bjarkason - Berdreymi
Viktor Benoný Benediktsson - Berdreymi
Ingvar E. Sigurðsson - Volaða land
Gísli Örn Garðarsson - Verbúðin

Leikkona ársins í aðalhlutverki:
Hera Hilmarsdóttir - Svar við bréfi Helgu
Sara Dögg Ásgeirsdóttir - Sumarljós og svo kemur nóttin
Aldís Amah Hamilton - Svörtu sandar
Kría Burgess - Randalín og Mundi: Dagar í desember
Nína Dögg Filippusdóttir - Verbúðin

Leikari ársins í aukahlutverki:
Björn Thors - Svar við bréfi Helgu
Blær Hinriksson - Berdreymi
Hilmar Guðjónsson - Volaða land
Guðjón Davíð Karlsson - Verbúðin
Ingvar E. Sigurðsson - Verbúðin

Leikkona ársins í aukahlutverki:
Aníta Briem - Svar við bréfi Helgu
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir - Svörtu sandar
Katla Njálsdóttir - Vitjanir
Kristín Þóra Haraldsdóttir - Verbúðin
Unnur Ösp Stefánsdóttir - Verbúðin

Búningar ársins:
Berdreymi - Helga Rós Hannam
Svar við bréfi Helgu - Eugen Tamberg
Verbúðin - Margrét Einarsdóttir og Rebekka Jónsdóttir
Against the ice - Margrét Einarsdóttir
Volaða land - Nina Grønlund

Gervi ársins:
Svar við bréfi Helgu - Evalotte Oosterop
Berdreymi - Kristín Júlla Kristjánsdóttir
Volaða land - Katrine Tersgov
Abbababb! - Hafdís Kristín Lárusdóttir
Verbúðin - Kristín Júlla Kristjánsdóttir

Leikmynd ársins:
Sumarljós og svo kemur nóttin - Heimir Sverrisson
Abbababb! - Systa Björnsdóttir
Svörtu sandar - Gunnar Pálsson & Marta Luiza Macuga
Against the ice - Atli Geir Grétarsson
Verbúðin - Atli Geir Grétarsson & Ólafur Jónasson

Brellur ársins:
Magic Lab, Haymaker, Split - Berdreymi
Rob Tasker - Abbababb!
Sigurgeir Arinbjarnarson - Svörtu sandar
Guðjón Jónsson (VFX Supervisor) Monopix / ShortCut / MPC / Union VFX/ Filmgate - Against the ice
Davíð Jón Ögmundsson - Verbúðin

Handrit ársins:
Heimir Bjarnason - Þrot
Bergsveinn Birgisson, Ottó G. Borg og Ása Helga Hjörleifsdóttir- Svar við Bréfi Helgu
Guðmundur Arnar Guðmundsson - Berdreymi
Hlynur Pálmason - Volaða land
Vala Þórsdóttir, Kolbrún Anna Björnsdóttir & Eva Sigurðardóttir - Vitjanir
Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson og Mikael Torfason - Verbúðin

Frétta- og viðtalsefni ársins:
Vigdís - Forseti á friðarstóli - Stöð 2
Kompás - Stöð 2
Krakkafréttir - KrakkaRÚV
Kveikur - Fréttastofa RÚV
Um land allt - Stöð 2

Skemmtiefni ársins:
Stóra sviðið
Krakkakviss
Krakkaskaupið
Áramótaskaup 2022
Hraðfréttir 10 ára

Íþróttaefni ársins:
Jón Arnór - Stöð 2 Sport & Stöð 2
Úrslitakeppni í körfubolta/körfuboltakvöld - Stöð 2 Sport
Förum á EM - Pera fyrir RÚV
HM stofan/HM kvöld - RÚV Íþróttir
Alex from Iceland - Skot Productions

Mannlífsefni ársins:
Æði 4 - 101 Productions
Leitin að upprunanum - Stöð 2
Börnin okkar - Task 4 Media fyrir RÚV
Náttúran mín - RÚV
Hvunndagshetjur - Skot Productions

Menningarefni ársins:
Veislan
Morð í norðri
Skapalón
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin
Klassíkin okkar

Kvikmyndataka ársins:
Jasper Wolf - Svar við bréfi Helgu
Sturla Brandth Grøvlen - Berdreymi
Maria von Hausswolff - Volaða land
Jóhann Máni Jóhannsson - Svörtu sandar
Hrafn Garðarsson - Verbúðin

Tónlist ársins:
Páll Ragnar Pálsson og Eðvarð Egilsson - Skjálfti
Gunnar Týnes - Sumarljós og svo kemur nóttin
Alex Zheng Hungtai - Volaða land
Ragnar Ólafsson - Vitjanir
Herdís Stefánsdóttir & Kjartan Dagur Holm - Verbúðin

Klipping ársins:
Antti Reikko - Svar við bréfi Helgu
Andri Steinn Guðjónsson & Anders Skov - Berdreymi
Julius Krebs Damsbo - Volaða land
Úlfur Teitur Traustason - Svörtu sandar
Kristján Loðmfjörð - Verbúðin

Hljóð ársins:
Gunnar Árnason - Skjálfti
Tuomas Klaavo - Svar við bréfi Helgu
Yanna Soentjens, Matthias Hillegeer - Sumarljós og svo kemur nóttin
Björn Viktorsson & Kristian Eidnes Andersen - Volaða land
Kjartan Kjartansson - Against the ice

Barna- og unglingaefni ársins:
Abbababb!
Krakkaskaupið
Miðjan
Ævntýri Tulipop
Randalín og Mundi: Dagar í desember

Upptöku- eða útsendingarstjóri ársins:
Sturla Skúlason - Sögur verðlaunahátíð
Björgvin Harðarson - Blindur bakstur
Þór Freysson - Mugison og Cauda Collective - Haglél í 10 ár
Salóme Þorkelsdóttir - Söngvakeppnin 2022
Þór Freysson - Sigurrós í Höllinni

Stuttmynd ársins:
Mitt Draumaland
Hávængja (Chrysalis)
Kílómetrar
Hreiður
HEX

Sjónvarpsmanneskja ársins:
Chanel Björk Sturludóttir
Kristjana Arnarsdóttir
Kristján Már Unnarsson
Steinþór Hróar Steinþórsson
Viktoría Hermannsdóttir
