Bíó og sjónvarp

Mike Down­ey heiðraður á Stock­fish

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Írski framleiðandinn Mike Downey verður heiðraður á Stockfish kvikmyndahátíðinni í ár.
Írski framleiðandinn Mike Downey verður heiðraður á Stockfish kvikmyndahátíðinni í ár. Getty/Andreas Rentz

Kvikmyndahátíðin Stockfish fer fram dagana 23. mars - 2. apríl í Bíó Paradís. Þetta er í níunda sinn sem hátíðin er haldin og hefur hún síðustu ár fest sig í sessi sem öflugur menningarviðburður hér á landi.

Um er að ræða árlega kvikmynda- og ráðstefnuhátíð fagfólks í kvikmyndabransanum sem haldin er í samvinnu við öll fagfélög í kvikmyndagreinum á Íslandi. Hátíðin var fyrst haldin árið 2015 með það að leiðarljósi að endurvekja Kvikmyndahátíð Reykjavíkur undir nýju nafni.

Markmið hátíðarinnar er að efla og auðga kvikmyndamenningu á Íslandi og vera íslenskum kvikmyndaiðnaði lyftistöng bæði erlendis og innanlands.

Um 26 kvikmyndir frá hinum ýmsu heimshornum verða sýndar á hátíðinni í ár. Þá verða sérstök heiðursverðlaun veitt í fyrsta skipti í sögu hátíðarinnar fyrir „stórkostlegt framlag til kvikmyndaiðnaðarins“. Handhafi verðlaunanna í ár er enginn annar en írski framleiðandinn Mike Downey en hann hlýtur verðlaunin fyrir ómetanlegt framlag til kvikmyndaiðnaðarins síðustu áratugi.

Mike Downey hefur komið víða við á sínum ferli sem kvikmyndaframleiðandi.Getty

Downey stofnaði framleiðslufyrirtækið Film and Music Entertainment árið 2000. Síðan hefur hann gert yfir 100 kvikmyndir í fullri lengd eftir leikstjóra á borð við Peter Greenaway, Agnieszka Holland, Julien Temple, Paweł Pawlikowski, Andrzej Jakimowski, Rajko Grlic, Juraj Jakubisko, Friðrik Þór Friðriksson og Stephan Daldry.

Auk framleiðslu kvikmynda hefur Mike verið listrænn stjórnandi kvikmyndahátíða um nokkurra ára skeið, verið meðlimur í Evrópsku kvikmynda akademíunni í um aldarfjórðung og stjórnarmaður í næstum tvo áratugi. Árið 2020 var hann svo kjörinn formaður Evrópsku kvikmynda akademíunnar. Áður var hann kosinn bæði í ráð og kvikmyndanefnd fyrir BAFTA.

Hægt er að kynna sér dagskrá hátíðarinnar hér.


Tengdar fréttir

Stemning á opnun Stockfish kvikmyndahátíðarinnar

Það var heilmikil stemning í Bíó Paradís við opnun Stockfish kvikmyndahátíðarinnar fyrir helgi. Fólk úr kvikmyndabransanum og aðrir góðir gestir fjölmenntu og nutu þess að skála og spjalla án fjölda- og fjarlægðatakmarkana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.