Leggja slagorðinu þar sem æ fleiri skilja ekki til hvers sé vísað Atli Ísleifsson skrifar 26. mars 2023 10:00 Hakkbollur í nýjum umbúðum og Chili con Carne-réttur í eldri umbúðum í hillu matvöruverslunar fyrr í vikunni. Vísir Sláturfélag Suðurlands hefur á undanförnum vikum kynnt til sögunnar nýtt útlit á 1944-skyndiréttunum og samhliða breytingunum verður hætt við notast við slagorð réttanna – „Matur fyrir sjálfstæða Íslendinga“. Forstjóri segir að sífellt fleiri skilji ekki vísun slagorðsins til ártalsins – það er réttirnir dragi nafn sitt af ártalinu þegar Íslendingar lýstu yfir sjálfstæði frá Danmörku.
Steinþór Skúlason, forstjóri SS, segir að 1944-réttirnir séu eitt sterkasta vörumerkið á markaðnum. „En það er eins og með tískubylgjurnar – maður er ekki alltaf í sömu fötunum. Það er sama með svona línu, það þarf að uppfæra eftir því hvernig straumarnir eru.“ Í sölu frá 1993 Steinþór segir að nú sé verið að breyta umbúðum réttanna í fjórða eða fimmta sinn frá upphafi en 1944-réttirnir hafa verið á markaðnum frá árinu 1993. Þeir höfðu þá verið þróaðir í framhaldi af hinum svokölluðu Rúlluuréttum sem höfðu verið í sölu fáeinum árum áður. Gamla merkið er til vinstri og það nýja til hægri.SS „Nú var verið að skipta línunni litalega aðeins í sundur – annars vegar hefðbundna rétti og svo það sem mætti kalla nýmóðins rétti sem höfði kannski meira til yngra fólks. Þetta er til að hjálpa fólki að velja,“ segir Steinþór og bendir á að framvegis upplýsingar um næringargildi réttanna meira sýnilegt og sömuleiðis neytendum gert auðveldara að endurvinna umbúðirnar. Skilja ekki til hvers sé vísað Steinþór segir að samhliða breyttu útliti nú þá hafi verið ákveðið að hætta notkun á slagorði réttanna – Matur fyrir sjálfstæða Íslendinga. Í markaðskönnunum fyrirtækisins hafi komið í ljós að sífellt fleiri viti einfaldlega ekki til hvers sé verið að vísa. „Þetta er náttúrulega orðaleikur. 1944 er árið þar sem Ísland varð sjálfstætt og þannig varð þetta slagorð til á sínum tíma – „Matur fyrir sjálfstæða Íslendinga“. Sem þýðir náttúrulega fyrir alla Íslendinga, við erum öll hluti af sjálfstæðri þjóð,“ segir Steinþór. Nýtt útlit 1944-réttanna.SS Segir eitthvað til um sögukennslu? Hann segir að slagorðið hafi sömuleiðis verið vísun í nýjan lífstíl. „Fólk er í tómstundum, íþróttum og svo framvegis og borðar ekki allt á sama tíma. Þetta var því vísun í að vera sjálfstæður – maður er ekki bundinn af því að hafa matinn alltaf klukkan sjö. Það var hugmyndin á bak við þetta. En svo kemur í ljós að æ fleiri voru ekki að skilja hvað þetta slagorð þýddi, að þetta væri vísun í ártalið sem Ísland varð sjálfstætt. Ég veit ekki hvort það segi kannski eitthvað til um sögukennslu nú til dags,“ segir Steinþór.
Auglýsinga- og markaðsmál Sláturfélag Suðurlands Matur Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Viðskipti innlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent