Skoðun

Mál­stol aftur í há­mæli

Ingunn Högnadóttir skrifar

Fyrir rúmu ári síðan komst málstol í hámæli þegar fjölskylda leikarans Bruce Willis gaf út tilkynningu þess efnis að hann væri hættur að leika í kvikmyndum eftir að hafa greinst með málstol. Í kjölfarið bárust talmeinafræðingum áhugaverð símtöl frá fjölmiðlum og þeir beðnir að útskýra hvað hugtakið fæli í sér. Töluverður áhugi kviknaði á málefninu, sem fylgt var eftir með viðtölum og greinarskrifum, en grófst svo fljótt í gleymskunnar dá - í erli og upplýsingaflæði hversdagsins.

En nú er málstol enn á ný ofarlega í huga margra. Að þessu sinni þó af gleðilegra tilefni, því Félag talmeinafræðinga á Íslandi mun í næstu viku standa fyrir alþjóðlegri málstolsráðstefnu í Reykjavík: Nordic Aphasia Conference. Um er að ræða langstærsta viðburð sem félagið hefur staðið fyrir, en von er á um það bil 200 ráðstefnugestum frá öllum heimshornum, bæði fagfólki og fræðimönnum. Ráðstefnan verður haldin í Kennaraháskóla Íslands og stendur yfir í þrjá daga.

En hvað er málstol?

Málstol er máltruflun sem getur haft áhrif á máltjáningu og málskilning, lestur og skrift. Algengasta orsök málstols er heilablóðfall, en heilaæxli, sýking í heila, heilabilun eða annar heilaáverki getur einnig valdið málstoli. Gera má ráð fyrir að á Íslandi fái um og yfir 100 einstaklingar málstol árlega. Málstol hefur ekki áhrif á persónuleika eða vitsmuni en getur auðveldlega kollvarpað lífi einstaklinga og aðstandenda þeirra, þegar viðkomandi á allt í einu erfitt með að tjá grunnþarfir sínar, framkvæma venjubundnar athafnir eins og að skrifa innkaupalista eða svara tölvupósti, sinna áhugamálum sínum og viðhalda samböndum við fjölskyldu og vini. Málstol getur því haft alvarlegar afleiðingar á líkamlegt, andlegt og félagslegt heilbrigði einstaklinga.

Þrátt fyrir þau miklu áhrif sem málstol getur haft á líf fólks, er almenn vitund og þekking á málstoli ekki mikil, hvort heldur sem er úti í samfélaginu eða inni á heilbrigðisstofnunum. Það væri því ekki alveg úr vegi að loka kannski nokkrum götum í kringum Kennó í næstu viku, skutlast eftir lykilfyrirlesurunum á Audi Q8 í lögreglufylgd og fá lánaðan smá mosa úr Hörpunni til borðskreytinga - eða hvað? Því þó ráðstefnan sé fyrst og fremst ætluð talmeinafræðingum og öðru fagfólki, binda skipuleggjendur vonir við að hún veki athygli út fyrir afmarkaðan hóp ráðstefnugesta og stuðli þannig að aukinni vitund og þekkingu á málefninu. Aukin þekking og skilningur á málstoli er nefnilega grundvöllur fyrir bættum lífsgæðum einstaklinga með málstol, bæði beint og óbeint. Frekari upplýsingar um málstol, orsakir, afleiðingar og ýmsar hagnýtar upplýsingar má finna á www.malstol.com

Höfundur er talmeinafræðingur á Sjúkrahúsinu á Akureyri.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×