Grunur um að sólarbjörn í kínverskum dýragarði sé maður Kristinn Haukur Guðnason skrifar 31. júlí 2023 22:10 Sólarbirnir eru minnstu birnir í heimi. EPA Forsvarsmenn dýragarðsins í kínversku borginni Hangzhou hafna því að birnir garðsins séu í raun fólk í búningum. Myndband náðist af einum sólarbirninum standa beinn á afturlöppunum eins og manneskja.
Myndband af sólarbirninum hefur farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla og hafa sumir netverjar efasemdir um að hann sé í raun björn. Frekar maður í búning. Björninn, sem heitir Angela og er frá Malasíu, virðist reyna að eiga einhvers konar samskipti við gesti garðsins og sést veifa þeim. Breska blaðið The Guardian greinir frá þessu. Talsmaður dýragarðsins hafnaði þessum orðróm í yfirlýsingu á laugardag og var hún birt í nafni Angelu. Benti Angela á að manneskja myndi ekki þola 40 gráðu sumarhitann klædd í þykkan feld eins og sólarbjörninn er með. Einnig að ríkisrekinn dýragarður myndi aldrei plata gesti sína. „Þegar kemur að björnum þá er það fyrsta sem kemur upp í hugann hvað þeir eru stórir og kraftmiklir. En það eru ekki allir birnir risavaxnir og hættulegir. Við Malasíubirnir erum litlir, smæsti björn veraldar,“ segir Angela. Sólarbirnir eru um 1,3 metri á hæð standandi á afturfótunum. Til að fullvissa almenning um að birnir garðsins væru raunverulegir var blaðamönnum boðið að koma að skoða þá í dag. Hangzhou dýragarðurinn er ekki eini kínverski dýragarðurinn sem hefur legið undir grun um að bjóða upp á fölsuð dýr. Aðrir garðar hafa meðal annars verið sakaðir um að merkja hunda sem úlfa og asna sem sebradýr.
Kína Dýr Dýragarðar Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira