Lífið

Sakar Brit­n­ey um fram­hjá­hald og er fluttur út

Árni Sæberg skrifar
Hjónaband þeirra Britney og Sams er sagt í dauðateygjunum.
Hjónaband þeirra Britney og Sams er sagt í dauðateygjunum. Kevin Winter/Getty

Sam Asghari, eiginmaður poppstjörnunnar Britney Spears, er sagður hafa flutt af heimili þeirra og undirbúi sig nú undir að sækja um skilnað frá henni. Ástæðan er sögð meint framhjáhald Britneyar.

Þetta herma heimildir dægurmiðilsins TMZ. Asghari er sagður hafa sakað Britney um framhjáhaldið meinta fyrir viku síðan og flutt í eigin íbúð í kjölfar mikils rifrildis hjónanna.

Hjónin gengu í hnapphelduna síðasta sumar. Brúðkaupið var smátt í sniðum en rataði þó í fjölmiðla eftir að Jason Alexander, fyrrverandi eiginmaður Britney til tveggja daga, ruddist inn í veisluna með látum. 

Þá herma heimildir TMZ að hjónaband þeirra hafi ekki verið neinn dans á rósum undanfarna mánuði. Asghari hafi lítið sofið á heimili þeirra í Calabasas og reglulega hafi komið til heiftúðlegra rifrilda milli þeirra. Britney hafi verið sögð hafa lagt hendur á Asghari oftar en einu sinni í umræddum rifrildum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.