Stjarnan lagði Þór í VÍS bikarnum Siggeir Ævarsson skrifar 22. október 2023 18:31 Ægir Þór er mættur aftur í Stjörnuna. Hér lyftir hann Geyisbikarnum 2018 Stjarnan varð í dag fyrsta liðið til að tryggja sig áfram í VÍS-bikarnum en sex leikir eru á dagskrá í dag í 32-liða úrslitum
Stjarnan tók á móti Þór frá Þorlákshöfn í Umhyggjuhöllinni. Stjarnan hefur farið brösulega af stað í deildinni en það skiptir oft litlu máli í bikarnum sem sannaði sig að þessu sinni. Stjarnan settist í bílstjórasætið strax í byrjun en Þorlákshafnarbúar voru þó ekki tilbúnir að gefast upp alveg strax. Sterkur þriðji leikhluti skilaði Þórsurum hársbreidd frá því að ná forystu í leiknum, staðan 71-68 fyrir lokaátökin. Þórsarar héldu uppteknum hætti í 4. leikhluta og komust yfir í tvígang en Ægir Þór Steinarsson, sem var öflugur í kvöld, jafnaði leikinn í 81-81 þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir og litu Stjörnumenn ekki til baka eftir það, lokatölur 92-84. Ægir Þór skoraði 24 stig fyrir Stjörnuna og bætti við sjö stoðsendingum en Finninn Antti Kanervo var stigahæstur allra á vellinum með 27 stig. Hjá gestunum var það Fotios Lampropoulos sem var stigahæstur með 20 stig. Fjórir aðrir leikir eru á dagskrá karlamegin í kvöld og einn kvennamegin. Þór Akureyri - Haukar – kl. 18:00 Snæfell - Höttur – kl. 18:15 KR - Ármann – kl. 19:00 ÍR - Tindastóll – kl. 19:15 VÍS bikar kvenna – 32 liða úrslit KR - Njarðvík – kl. 16:30 Leik KR og Njarðvíkur lauk nú rétt í þessu þar sem Njarðvíkingar fóru nokkuð létt með 1. deildarlið KR, lokatölur 55-86
Körfubolti VÍS-bikarinn Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Sjá meira