Ekki liggur fyrir hve mörgum verður sagt upp en samkvæmt frétt Reuters er um að ræða nokkur hundruð starfsmenn.
Í pósti til starfsmanna sagði einn yfirmanna deildarinnar sem haldið hefur utan um spjallþjarkan Alexa að markmiðið með breytingunum væri að nýta auðlindir fyrirtækisins best í samræmi við forgangsverkefni fyrirtækisins og það hvað skiptir áhorfendur mestu máli. Það væri þróun gervigreindarforrits.
Daniel Rausch, áðurnefndur yfirmaður, sagðist vongóður um að innleiðing gervigreindar og mállíkans í Alexu myndi vegnast vel og sagði mikinn árangur þegar hafa náðst.
Alexa er líklega þekktasti spjallþjarki heimsins, kannski í öðru sæti á eftir Siri, og um tíma störfuðu um fimm þúsund manns við þróun hennar og Echo-hátalaranna sem tengjast henni. Alexa byggir þó á tækni sem þykir nú úrelt.
Gervigreindarforrit eins og Chat GPT frá Open AI, Bing frá Microsoft og Bard frá Google njóta mikillar athygli þessa dagana. Þar er um að ræða forrit sem geta búið til texta, kóða, myndir og annað, eftir spurningum og ráðleggingum notenda.
Segl hafa verið dregin saman í öðrum deildum Amazon að undanförnu og má þar nefnda tónlistardeild fyrirtækisins og tölvuleikjadeild. Reuters segir hluta starfa sem lögð hafa verið niður í öðrum deildum hafa komið að Alexa.
Niðurskurðarhnífurinn hefur verið mikið á lofti hjá Amazon, einhverju stærsta fyrirtækis heims, á árinu, þar sem sala hefur dregist saman. Þrátt fyrir þann samdrátt skilaði aflaði fyrirtækið töluvert meiri tekna á þriðja ársfjórðungi en greinendur bjuggust við.
Í frétt CNBC segir til að mynda að fyrr á árinu hafi fyrirtækið framkvæmt stærstu hópuppsögn í sögu Bandaríkjanna, þegar 27 þúsund manns var sagt upp. Samhliða því voru nokkrar af óarðbærum deildum fyrirtækisins lagðar niður.