Gypsy Rose losnar úr steininum og gefur út bók Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. desember 2023 10:09 Gypsy Rose Blanchard til vinstri og Joey King í hlutverki hennar í The Act til hægri. Hulu Gypsy Rose Blanchard sem komst í heimsfréttirnar fyrir að hafa lagt á ráðin um að myrða móður sína bíður þess nú að losna úr fangelsi. Hún hefur afplánað rúm sjö ár fyrir aftan lás og slá en verður látin laus í dag.
Gypsy, nú 32 ára, var dæmd í tíu ára fangelsi í júlí 2016 fyrir aðild að morðinu á móður hennar Clauddine Dee Dee Blanchard. Þáverandi kærasti Gypsy, Nicholas Godejohn, fékk lífstíðardóm fyrir að stinga Dee Dee til bana. Saga Gypsy varð að vinsælu sjónvarpsseríunni The Act. Talið er að Gypsy hafi verið fórnarlamb móður sinnar sem hafi látið líta út fyrir að dóttir hennar ætti við alvarleg veikindi að stríða. Sjúkraskrárnar hafi týnst Gypsy var þvinguð til að nota hjólastól í barndómi og gangast undir óþarfa aðgerðir í læknisfræðilegum tilgangi. Dee Dee var sögð hafa skömmu eftir fæðingu Gypsy haldið því fram að dóttir hennar þjáðist af kæfisvefni. Þegar Gypsy var átta ára hélt móðir hennar því fram að hún glímdi við hvítblæði og vöðvarýrnun sem krafðist þess að hún notaði hjólastól og fengi næringu í æð. Mæðgurnar fluttu frá Louisiana til Aurora í Missouri í september 2005 eftir að Dee Dee hélt því fram að þær hefðu verið fórnarlömb fellibylsins Katrínar sem lagði New Orleans í rúst. Hún sagði sjúkraskrár dóttur hennar hafa týnst í fellibylnum. Mæðgurnar söfnuðu háum fjárhæðum í formi styrkja og var boðið í ferðalög vegna veikinda Gypsy. Þá byggðu góðgerðarsamtök vestan hafs hús fyrir mæðgurnar með góðu aðgengi fyrir hjólastóla. Það var svo í júní 2015, þegar Gypsy var 23 ára, sem hún fékk kærasta sinn Nicholas Godejohn til þess að ráða móður sinni bana. Þau höfðu kynnst á kristilegri stefnumótasíðu. Gypsy tjáði lögreglu að Godejohn hefði farið heim til Dee. Hann hefði verið með hanska, hníf og límband sem Gypsy hefði útvegað. Hún hefði falið sig inni á baðherbergi á meðan Godejohn stakk móður hennar sautján sinnum í svefnherbergi hennar. Eftir morðið flúði kærustuparið heim til sín þar sem þau voru handtekin nokkrum dögum síðar. Bók handan við hornið Gypsy samdi við ákæruvaldið og þurfti ekki að bera vitni í dómssal. Hún var meðal vitna þegar mál Godejohn fór fyrir dóm og sagðist hafa átt hugmyndina að drepa móður hennar. Hún hefði haldið ástarsambandi þeirra Godejohn leyndu því móðir hennar hefði viljað ráða öllu í lífi hennar. Þá sagðist Gypsy hafa komist að því þegar hún var nítján ára að hún væri ekki veik eins og móðir hennar hafði haldið fram. Hún fékk svo nánari upplýsingar um heilsu sína eftir að hafa verið handtekin. Verjendur Godjohn héldu því fram að hann hefði drepið Dee Dee til að forða Gypsy frá ofbeldi af hennar hálfu. Þá væri hann yfir sig ástfanginn af Gypsy. Fangelsismálayfirvöld í Missouri staðfestu við Time að Gypsy yrði látin laus 28. desember. Hún hyggur á útgáfu bókarinnar Conversations on the Eve of Freedom þann 9. janúar næstkomandi. ABC News hefur fjallað ítarlega um málið og má sjá umfjöllunina í fjórum hlutum hér að neðan. Þar er meðal annars rætt við Gypsy, föður hennar og verjanda auk fólks sem sýndi mæðgunum kærleika og veitti fjárstuðning vegna meintra veikinda.
Bíó og sjónvarp Bandaríkin Tengdar fréttir Gypsy Rose byrjuð aftur með unnustanum Gypsy Rose Blanchard, ung kona sem skipulagði morð móður sinnar sem hafði neytt hana árum saman til að þykjast vera langveik, er byrjuð aftur með unnusta sínum en parið sleit trúlofuninni stuttlega. 30. ágúst 2019 09:33 Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Þráhyggja ástarinnar og dulúð bakherbergjanna Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist „Það má herma“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira
Gypsy Rose byrjuð aftur með unnustanum Gypsy Rose Blanchard, ung kona sem skipulagði morð móður sinnar sem hafði neytt hana árum saman til að þykjast vera langveik, er byrjuð aftur með unnusta sínum en parið sleit trúlofuninni stuttlega. 30. ágúst 2019 09:33