Rómverjar hrapa niður töfluna eftir tap í Mílanó Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 14. janúar 2024 21:45 Þessir þrír skoruðu allir. Francesco Scaccianoce/Getty Images AC Milan styrkti stöðu sína í 3. sæti Serie A, ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, með 3-1 sigri á Roma. Á sama tíma hrapa Rómverjar niður töfluna og eru nú í 9. sæti en þó aðeins fimm frá Meistaradeildarsæti. Þegar tölfræðin er skoðuð var leikurinn einkar jafn en það er því miður ekki spurt um það í fótbolta. Yacine Adli skoraði eina mark fyrri hálfleiks og AC Milan leiddi 1-0. HT | decide i primi 45 !!! #MilanRoma 1-0 pic.twitter.com/fx33OQ707p— Lega Serie A (@SerieA) January 14, 2024 Snemma í síðari hálfleik tvöfaldaði Oliver Giroud forystu heimamanna eftir að Simon Kjær hafði skallað boltann til hans. Þegar rúmar tuttugu mínútur lifðu leiks fengu Rómverjar vítaspyrnu. Leandro Paredes fór á punktinn og minnkaði muninn fyrir gestina. Í kjölfarið gerðu þeir sig líklega til að jafna metin en sú von dó endanlega þegar Theo Hernandez kom Mílanó aftur tveimur mörkum yfir á 84. mínútu. FT | Il @acmilan stende la Roma a San Siro!!! #MilanRoma 3-1 pic.twitter.com/WUf616Kpdo— Lega Serie A (@SerieA) January 14, 2024 Lokatölur á San Siro 3-1 heimaliðinu í vil og AC Milan nú með 42 stig í 3. sæti, fjórum minna en Juventus sem er í 2. sætinu með leik til góða. Inter trónir svo á toppnum með 51 stig. Á sama tíma er Roma í 9. sæti með 29 stig. Ítalski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti