Lífið

Brókarlalli kenndur við Windows fær traust Finna

Bjarki Sigurðsson skrifar
Úr atriði Windows95man.
Úr atriði Windows95man. Eurovision

Finnski tónlistarmaðurinn Windows95man flytur framlag þjóðar sinnar í Eurovision í Malmö í ár. Hann byrjar atriðið inni í eggi og neitar að vera í buxum þar til undir lok atriðisins, enda engar reglur hjá honum. 

Um helgina fór Uuden Musiikin Kilpailu-söngvakeppnin fram í Finnlandi en keppnin er undankeppni Finna fyrir Eurovision-söngvakeppnina sem haldin verður í Malmö í Svíþjóð í maí. 

Buxnalaus og alveg sama

Finnar eru ekki alltaf á þeim buxunum að senda út hefðbundið atriði, í raun ákváðu þeir að vera ekki í neinum buxum þar sem Windows95man er á brókinni fyrstu tvær mínútur atriðisins. 

Windows95man er persóna listamannsins og plötusnúðarins Teemu Keisteri og klæðist, auk brókarinnar sem rætt var um hér á undan, derhúfu og stuttermabol sem bæði eru með merki stýrikerfisins Windows 95 sem var á sínum tíma gríðarlega vinsælt.

Lagið heitir „No Rules!“ sem myndi þýðast yfir á íslensku sem „Engar reglur!“ og fjallar um Windows95man sjálfan og einu regluna í hans lífi, sem er að það eru engar reglur. Honum er sama hvað öðrum finnst, hvað er rétt og rangt, heldur lifir hann sínu lífi eins og honum sýnist.

Stjörnuljósareipi

Með Windows95man í atriðinu er söngvarinn Henri Piispanen sem sér um að syngja viðlagið. Hann er ekki jafn léttklæddur og félagi sinn, hann er klæddur í gallajakka, gallaskyrtu og gallastuttbuxur. Og já, Windows95man byrjar atriðið inni í gallaeggi.

Undir lok atriðisins birtast annað par af gallastuttbuxum í loftinu og sígur niður þar sem Windows95man stendur. Hann klæðir sig í stuttbuxurnar og reipið sem þeir sigu niður í verða að stjörnuljósum. Windows95man stígur þá trylltan dans og endar atriðið í aðeins meiri fatnaði en hann hóf atriðið í, sem er öfugt við það sem á sér oft stað í Eurovision, það er að keppendur fækki fötum á sviðinu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.