FH-ingar í góðum málum fyrir seinni leikinn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. febrúar 2024 18:45 Ásbjörn Friðriksson skoraði fimm mörk fyrir FH í kvöld. VÍSIR/HULDA MARGRÉT FH vann sterkan fimm marka sigur er liðið mætti slóvakíska liðinu Presov í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins í handbolta í kvöld, 35-30.
FH-ingar höfðu yfirhöndina stærstan hluta leiksins og liðið náði fjögurra marka forskoti í stöðunni 10-6. Hafnfirðingar héldu því forskoti út hálfleikinn og voru 15-12 yfir þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Áfram héldu FH-ingar þriggja til fimm marka forskoti í síðari hálfleik, en í stöðunni 25-21 fór að halla undan færi. Presov skoraði þá fjögur mörk í röð og jafnaði metin áður en liðið náði forystunni í stöðunni 26-27. FH-ingar vöknuðu þó til lífsins á ný og náðu aftur góðu taki á leiknum. Í þetta sinn slepptu FH-ingar ekki takinu og unnu að lokum fimm marka sigur, 35-30. Jakob Martin Ásgeirsson og Einar Bragi Aðalsteinsson voru markahæstir í liði FH með sex mörk hvor. Ásbjörn Friðriksson bætti við fimm mörkum. FH-ingar fara því með fimm marka forskot í seinni leikinn sem fram fer á morgun. Leikur morgundagsins fer einnig fram á heimavelli Presov, en leikur kvöldsins var skráður sem heimaleikur FH-inga.
Handbolti FH Mest lesið Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Fótbolti Eva bætti hvert metið á fætur öðru Golf Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira