Salah mættur aftur til æfinga Valur Páll Eiríksson skrifar 6. mars 2024 17:00 Salah var mættur aftur á æfingasvæðið. Getty Egyptinn Mohamed Salah var mættur á æfingu hjá Liverpool í dag en hann er á meðal leikmanna liðsins sem eru í kapphlaupi við tímann fyrir stórleik helgarinnar gegn Manchester City.
Myndir af Egyptanum á æfingu dagsins voru birtar á samfélagsmiðlum félagsins í dag, stuðningsmönnum Liverpool eflaust til mikillar gleði. Salah meiddist á Afríkumótinu með egypska landsliðinu og var frá í um mánuð vegna meiðsla í læri. Þau meiðsli tóku sig upp að nýju eftir sigur Liverpool á Brentford um miðjan febrúar og hefur Salah verið frá síðan. Out for training pic.twitter.com/LCysQWcEu1— Liverpool FC (@LFC) March 6, 2024 Salah mun ólíklega taka þátt í leik Liverpool við Spörtu Prag í Sambandsdeildinni á morgun en vonast er til að hann geti spilað gegn Manchester City. Tveir leikmenn Liverpool sneru aftur síðustu helgi er Ungverjinn Dominik Szobozslai spilaði sinn fyrsta leik um hríð og Darwin Nunez sem skoraði sigurmarkið gegn Nottingham Forest kom einnig til baka eftir meiðsli. Curtis Jones og Ryan Gravenberch eru báðir frá vegna ökklameiðsla en eru á batavegi. Þó er ólíklegt að þeir taki þátt í leik helgarinnar. Þá er lengri bið eftir markverðinum Alisson, Englendingnum Trent Alexander-Arnold og Diogo Jota. Joel Matip er frá út leiktíðina og sömu sögu er að segja af miðjumanninum Thiago Alcantara. Leikur Sparta Prag og Liverpool í Evrópudeildinni er klukkan 17:45 annað kvöld og verður í beinni á Stöð 2 Sport 2.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Óvissa í Indlandi lætur City selja Fótbolti Fleiri fréttir Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Sjá meira