Fyrsta stikla Fallout lítur dagsins ljós Samúel Karl Ólason skrifar 7. mars 2024 15:11 Það virðist ýmislegt ganga á í Nýju Kaliforníu. Amazon hefur birt fyrstu almennilegu stikluna fyrir þættina Fallout sem byggja á samnefndum tölvuleikjum sem notið hafa gífurlegra vinsælda í marga árátugi. Þar má sjá þau
Eins og í mörgum af Fallout leikjunum virðist sem aðalpersóna þáttanna, sem heitir Lucy og leikin er af Ellu Purnell, send út úr hvelfingu sinni undir Kaliforínu, að virðist til að leysa ákveðið verkefni. Walton Goggins, kemur Lucy til aðstoðar en í stiklunni má einnig sjá hið svokallaða Bræðralag stálsins. Þættirnir eru framleiddir í samvinnu við Bethesda, sem á réttinn að leikjunum og hefur framleitt síðustu leiki seríunnar. Amazon Studios tilkynntu árið 2020 að forsvarsmenn fyrirtækisins hefðu samið við Bethesda um réttinn til að gera þætti úr söguheiminum. Jonathan Nolan, einn af forsvarsmönnum Westworld-þáttanna, gerir þættina. Fallout-leikirnir og þættirnir gerast í heimi sem breytti um stefnu frá okkar heimi í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar. Þar er tækni- og menningarþróun frábrugðin okkar að því leiti að miklar framfarir náðust í beislun kjarnorku og er hún notuð til að knýja mikinn fjölda tækja og tóla eins og bíla og jafnvel ristavéla. Hins vegar varð ekki mikið um framfarir varðandi tölvur og menningu svipaði til sjötta áratugar síðustu aldar. Stórt stríð braust út í heiminum árið 2077 sem gerði út af við flest alla íbúa jarðarinnar. Margir höfðu þó komið sér fyrir í sérstökum byrgjum þar sem þau lifðu mörg hver stríðið af. Þetta er í raun fyrsta stiklan (trailer) sem birt er en áður var búið að birta svokallaða kitlu (teaser). Heimurinn er þó ekki í góðu ásigkomulagi eftir kjarnorkustyrjöldina og er hann búinn af stökkbreyttum skrýmslum, vélmennum og vondu fólki. Ekki liggur fyrir hvar þættirnir falla inn í sögu Fallout leikjanna en í stiklunni má í fljótu bragði sjá skilti bæjarins Shady Sands, sem spilar rullu í Fallout 1, og fána New California Republic, sem bregður fyrir í fyrstu tveimur leikjunum og Fallout: New Vegas. Kaflinn þar sem fáninn sést gefur til kynna að þar sé verið að sýna bardaga milli NCR og Bræðralagsins sem gefur til kynna að þættirnir eigi sér stað fyrir sögu New Vegas. Allir átta þættir seríunnar verða birtir á Prime þann 11. apríl.
Bíó og sjónvarp Leikjavísir Hollywood Amazon Mest lesið Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Lífið Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Lífið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Tónlist Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Lífið Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Lífið Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Menning Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Lífið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Lífið Fleiri fréttir Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira