Flettu ofan af launamun kynja á Barnaspítalanum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 9. apríl 2024 08:00 Jóhanna Guðrún Pálmadóttir og Helga Elídóttir eru tvær af þremur kvenlæknum sem leiddu málið í ljós. Læknablaðið/GunnhildurArna Þrír barnalæknar á Landspítalanum flettu ofan af kynbundnum launamun á Barnaspítalanum. Karllæknar hafi fengið fleiri viðbótarþætti metna til launa. Laun kvennanna hafa verið leiðrétt og þeim bættur skaðinn afturvirkt. Dæmi séu um að fleiri konur hafi fengið launaleiðréttingu.
Í grein sem birtist í nýjasta tölublaði Læknablaðsins er fjallað ítarlega um mál Jóhönnu Guðrúnu Pálmadóttur, Helgu Elídóttur og Berglindar Jónsdóttur sem fóru að rannsaka launamun á barna- og kvennadeild Landspítalans í kjölfar kvennafrídagsins síðastliðinn október. Við eftirgrennslan þeirra sem fól meðal annars í sér að nýta heimild í lögum til að fá uppgefin laun allra sérfræðilækna deildarinnar komust þær að því að karlar fengju hærri laun að meðaltali burtséð frá verðleikum. Minnisblað ekki nýtt Kjarasamningar kveða á um að laun lækna fari fyrst og fremst eftir námsferli og starfsaldri. Þá geta sérfræðilæknar hækkað um launaflokk fyrir að hafa erlent læknapróf og tvo fyrir doktorspróf. Þeir geta í ofanálag hækkað um fimm launaflokka, sem metið er huglægt hverju sinni, og gefur hver flokkur þrjátíu þúsund krónur samkvæmt umfjöllun Læknablaðsins. Viðbótarþættir sem spila inn í séu til að mynda sérþekking eins og undirsérgrein, stjórnun, rannsóknir og kennsla auk sérstakra verkefna. Matið sé í höndum yfirmanns. Landspítalinn kynnti minnisblað til að hafa til hliðsjónar við mat þessara viðbótarþátta árið 2016 en rannsókn þeirra Jóhönnu og Helgu leiddi í ljós að ekki var notast við minnisblaðið þegar þær voru ráðnar til starfa árið 2016. „Þær benda á að þrátt fyrir minnisblaðið virðist þó sem stífar sé horft á rammann í tilfelli kvenna. Útreikningar þeirra þriggja hafi sýnt að konur á Barnaspítalanum höfðu að meðaltali 3,15 viðbótarþætti þegar karlar voru með 3,8,“ segir í greininni. Yfirmenn hafi sofið á verðinum Þær undirbjuggu ítarlega kæru til Kærunefndar jafnréttismála og sendu afrit af henni til forstjóra, framkvæmdastjóra kvenna- og barnasviðs og framkvæmdastjóra mannauðssviðs. Þá hafi launin verið leiðrétt afturvirkt til þess tíma sem þær voru ráðnar. Í samtali við Læknablaðið segir Jóhanna yfirmenn og stjórnendur hafa sofið á verðinum. Aðrar konur séu nú farnar að skoða laun á deildum sínum og dæmi séu um fleiri launaleiðréttingar. „Við sáum í þessari vinnu okkar að doktorsprófið sérstaklega virðist ekki skila konum neinum launaflokki. Þeir eiga að vera tveir en virðist talið aukaatriði séu konur komnar með aðra viðbótarþætti,“ hefur Læknablaðið eftir Jóhönnu. Þá hefur málið haft áhrif á það traust sem þær bera til vinnuveitandans. Helga segist vera sátt við málalyktir en að hún muni héðan af bera saman laun sín við laun annarra lækna á deildinni árlega og fylgjast grannt með málum. Þær hvetja lækna af öllum kynjum til að ráðfæra sig við Læknafélagið þegar kemur að launamálum og treysta spítalanum ekki í blindni. „Ég mun aldrei trúa því aftur að launasetningin sé sanngjörn. Ég verð bara að gá að því sjálf,“ hefur Læknablaðið eftir Helgu. Vilji halda launamuninum undir 2,5 prósent Landspítali réðst í ítarlega skoðun á launasetningu sérfræðilækna þvert á svið spítalans til að bregðast við máli Jóhönnu og Helgu, samkvæmt því er kemur fram í svari spítalans við fyrirspurnum Læknablaðsins. Launamunur kynjanna á Landspítalanum sé nú mældur 1,4 prósent körlum í vil. Í svarinu kom fram að minnisblaðið um notkun starfsbundinna þátta við nýráðningar sérfræðilækna hefði ekki verið nýtt gagnvart þeim sem ráðin voru til kvenna- og barnasviðs árið 2019. Til að gæta samræmis innan sviðsins hafi verið samþykkt að leiðrétta laun þeirra kvenna sem ráðnar voru til sviðsins árið 2019. Landspítalinn segi að hann hafi haft jafnlaunavottun frá árinu 2020 og hafi það að markmiði að leiðréttur kynbundinn launamunur sé ekki meiri en 2,5 prósent. „Kynbundinn leiðréttur launamunur á Landspítala mældist 1,7% (karlar hærri) á árinu 2023 og á árinu 2024 mælist hann 1,4% (karlar hærri),“ kom fram í svari Landspítalans við fyrirspurn Læknablaðsins.
Landspítalinn Stéttarfélög Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira