Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Atli Ísleifsson skrifar 8. maí 2024 08:15 Linda Jónsdóttir starfaði um árabil hjá Marel. Aðsend Linda Jónsdóttir hefur verið ráðin í stöðu aðstoðarforstjóra og fjármálastjóra Sidekick Health.
Í tilkynningu segir að Linda hafi mikla alþjóðlega reynslu á sviði rekstrar og fjármála en hún hafi starfað hjá Marel í fimmtán ár, síðast sem framkvæmdastjóri rekstrar en þar áður lengst af sem fjármálastjóri félagsins. Félagið hafi á því tímabili klárað nokkrar yfirtökur og sameiningar, rúmlega þrefaldað tekjurnar og verið tvískráð á markað hér á landi og í Amsterdam. „Linda hefur mikla reynslu af því að skala upp nýsköpunarfyrirtæki og hefur einnig setið í stjórn Framtakssjóðs Íslands, Viðskiptaráðs og Vísindagarða. Linda er með Cand Oecon gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands auk meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Reykjavíkur. Hún er gift Yngva Halldórssyni viðskiptafræðingi og eiga þau þrjú börn. Linda mun áfram gegna stjórnarformennsku í Íslandsbanka samhliða störfum sínum hjá Sidekick en hún tók sæti í stjórn bankans síðastliðið sumar,“ segir í tilkynningunni. Læknarnir Tryggvi Þorgeirsson og Sæmundur Oddsson stofnuðu Sidekick Health árið 2014. Fyrirtækið þróar meðferðir til þess að bæta heilsu og líðan fólks með ýmsa langvinna sjúkdóma eins og offitu, sykursýki 2, krabbamein og hjarta- og æðasjúkdóma. Síðasta haust festi Sidekick Health kaup á þýska fyrirtækinu Aidhere GmbH sem er leiðandi í lyfseðilsskyldum heilbrigðistæknilausnum í Þýskalandi. Meðal fjárfesta í Sidekick Health eru Novator Partners, Frumtak Ventures, Wellington Partners og Asabys Partners.
Vistaskipti Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira