Fimmtán ár – nýtum tímann betur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar 19. júlí 2024 10:31 Tíminn er dýrmætur. Líka í pólitík. Í vikunni voru liðin fimmtán ár frá því að Össur Skarphéðinsson þáverandi utanríkisráðherra lagði formlega fram umsókn Íslands að Evrópusambandinu. Samstarfsmenn hans í ríkisstjórn komu í veg fyrir að honum tækist að ljúka viðræðunum. Ég rifja þetta upp nú því það blasir við flestum að við höfum ekki nýtt tímann vel. Aðild að Evrópusambandinu er ekki sjálfstætt afmarkað markmið. Hún er á hinn bóginn verkfæri, sem auðveldar okkur að ná markmiðum á fjölmörgum sviðum og hjálpar til við að leysa vanda heimila og fyrirtækja. Svo ekki sé minnst á mikilvægi sterkrar og samhentrar Evrópu þegar frelsi, lýðræði og mannréttindi eiga undir högg að sækja í harðnandi heimi. En líka þegar kemur að hinu stóra samhengi að styrkja þjóðaröryggi landsins. Milljón dollara spurning í næstu kosningum Hefðum við lokið viðræðunum og þjóðin samþykkt aðild væru skuldug heimili ekki í þeirri kreppu ofurvaxta, sem við heyrum daglega af. Kreppu sem er að keyra venjuleg heimili fjölskyldufólks í kaf en er reglubundin birtingarmynd pólitískra ákvarðana. Stjórnarflokkarnir hefðu heldur ekki þurft að kasta ryki í augu bænda með því að banna samkeppni, svo nýleg og sjúskuð dæmi frá ríkisstjórnarheimilinu séu nefnd. Allt vegna þess að stjórnarflokkarnir treysta sér ekki til að taka á raunverulegum vanda bænda og leysa þá úr spennitreyju vaxtaokurs og yfirgengilegs fjármagnskostnaðar. Og þannig mætti lengi telja. Færeyska krónan er fasttengd við Evru. Fyrir skömmu skrifaði Óli Anton Bieltvedt grein um þýska könnun á lífskjörum í fjölmörgum ríkjum. Þar stóðu Færeyingar mun framar en við. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna spyr í viðtali við Heimildina: „Af hverju eru vextir viðvarandi háir á Íslandi; miklu hærri en í nágrannalöndunum?“ Hann segir að þetta sé milljón dollara spurningin, sem verði stóra málið fyrir næstu kosningar. Brexit jók skrifræðið Brexit snerist í höndum þeirra sem sannfærðu nauman meirihluta Breta að taka þá ákvörðun. Nú eru átta ár liðin. Niðurstaðan er skýr. Flestir Bretar eru þeirrar skoðunar að efnahagur landsins hafi versnað við útgönguna og skrifræði aukist. Frelsi þeirra sem starfa meðal annars í skapandi greinum hefur þrengst. Í viðtali við RÚV síðasta miðvikudag segir íslensk kona, Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths, sem búið hefur í Bretlandi í þrjátíu ár: „Þær eru alveg ótvíræðar þær breytingar sem hafa orðið, hvað varðar alla stjórnsýslu. Ég sem tónlistamaður þarf að hafa skírteini um það að ég greiði skatta í þessu landi. Og ferli sem tók fjórar til fimm vikur tekur núna upp í níu mánuði.“ Bresku sjómennirnir sem trúðu fagurgalanum um að aðstæður þeirra myndu batna utan Evrópusambandsins telja sig nú hafa verið blekkta. Ákall forystumanna neytenda og launafólks Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna lýsir þeirri skoðun sinni í fyrrnefndu viðtali að stjórnvöld verði að láta gera óháða úttekt á krónunni. Fyrir tæpu ári hafði Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins forystu um að óska eftir því við Samtök atvinnulífsins að slík greining yrði gerð til að auðvelda umræðuna. Atvinnulífið með SA í broddi fylkingar hafnaði beiðninni. Forseti ASÍ, Finnbjörn A. Hermannsson hefur síðan ítrekað þessa ósk. Ríkisstjórnin tók hins vegar sömu afstöðu og SA þegar ég spurðist fyrir um afstöðu hennar á Alþingi. Sú ákvörðun Samfylkingarinnar að setja Evrópumálin á hilluna hefur líka veikt jákvæð viðbrögð við þessari ósk forystumanna neytenda og launafólks. En Viðreisn mun áfram gæta þeirra almannahagsmuna, sem þessir forystumenn tala fyrir og halda málinu á dagskrá. Annars líða fleiri ár og lítið breytist. Nema stöku andlit í nýjum ráðherrastól. Í því felast hins vegar litlir almannahagsmunir. Þjóðaratkvæði fyrir kosningar Flestir eru þeirrar skoðunar að ekki sé ráðlegt að beita þessu verkfæri í almanna þágu, sem felst í fullri aðild að Evrópusambandinu, nema kjósendur ákveði það sjálfir í sérstakri þjóðaratkvæðagreiðslu. Því er Viðreisn sammála og vill að þjóðin fái tækifæri til að ákveða næsta skref í þessu mikilvæga máli. Ef þjóðin segir já verði endanlega niðurstaða samningaviðræðna síðan borin undir þjóðina. Við slíka tvöfalda atkvæðagreiðslu á enginn að vera hræddur. Nýleg skoðanakönnun sýnir að það er vilji tveggja þriðju hluta þjóðarinnar að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram. En nú reynir enn og aftur á að pólitíkin nýti tíma sinn vel. Næstu ríkisstjórnar bíður mikið starf við viðreisn ríkisfjármála og velferðarmála. Til þess að tími nýrrar ríkisstjórnar nýtist sem best er afar æskilegt að hún viti frá fyrsta degi hvort þjóðin vilji að hún beiti þessu verkfæri. Verkfæri sem getur auðveldað okkur að ná svo mörgum markmiðum sem verða á dagskrá kosninganna. Eins og að ná niður tugi milljarða vaxtakostnaði ríkisins sem betur færu í velferð, menntun, inniviði eða niðurgreiðslu skulda. Með þetta í huga er það mín skoðun að þjóðaratkvæði um framhald aðildarviðræðnanna eigi að fara fram fyrir næstu kosningar. Alla vega ekki síðar en samhliða þeim. Í þágu allra Í slíkri atkvæðagreiðslu hafa fylgjendur og andstæðingar fullrar aðildar jafna stöðu. Það ætti því að vera jafnt keppikefli fyrir fulltrúa beggja á Alþingi að sameinast um að fá botn í málið áður en næsta ríkisstjórn hefur störf. Enginn veit hvernig næsta ríkisstjórn verður samsett. En stjórnarmyndun getur orðið flókin. Það er því í þágu allra að fá svar þjóðarinnar við þessari spurningu fyrst. Ég geri mér grein fyrir því að þetta er ný nálgun og einhver áskorun fyrir stjórnmálin. En þannig nýtum við tímann best. Fyrir þjóðina. Höfundur er formaður Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Viðreisn Evrópusambandið Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Sjá meira
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar