„Þetta var stór sigur fyrir okkur. Hlynur og ég erum að reyna kenna okkar leikmönnum, sérstaklega þeim nýju og heima stelpum að við þurfum að sýna Tindastóls orkuna. Það er okkar einkenni að gefast aldrei upp og við berjumst alltaf fram í lokin.“ Sagði Israel Martin þjálfari Tindastóls eftir sigurinn gegn Njarðvík.
Baráttan í liði Tindastóls var frábær og þær gáfust aldrei upp þó svo að það hafi komið slæmur kafli í þriðja leikhluta. Þær settu stór skot undir lokin og snéru leiknum við.
„Já Randi [Keonsha Brown] kom hingað til þess. Mér fannst þegar við lentum í villu vandræðum með Paula [Canovas Rojas] og Edyta [Ewa Falenzcyk] fann fyrir einhverju í mjöð þá stigu Brynja [Líf Júlíusdóttir], Klara [Sólveig Björgvinsdóttir] og Inga [Sólveig Sigurðardóttir] upp og skiluðu stóru verki og auðvitað Emma [Katrín Helgadóttir] setti þrista og komast á körfuna. Þó svo það sjáist ekki á stigatöflunni þá voru allar í liðinu með mikilvæg hlutverk.“
Tindastóll var með flottan varnarleik í kvöld og létu Njarðvíkinga vinna fyrir sínum stigum.
„Við héldum þeim í 76 stigum sem er mikið. Við létum [Brittany] Dinkins vinna fyrir öllum sínum stigum. Hún skoraði bara 21 stig en er vanalega yfir 30. Varnarlega vorum við með smá breytingar sem virkaði mjög vel en það sem skiptir mestu máli var að við vorum að gera hluti sem við höfum verið að æfa. Við gerum aldrei neitt óútreiknanlegt svo ég er ánægður með að stelpurnar séu að læra og við verðum að njóta þessa sigurs því hann var mjög góður.“
Randi Keonsha Brown var virkilega öflug í liði Tindastóls í fyrri hálfleiknum en það dró aðeins af henni í seinni eða allt fram að fjórða leikhluta þegar hún komst aftur í gírinn.
„Já við gáfum henni smá hvíld. Hún kom svo til mín og bað mig um að láta sig fá boltann [í fjórða leikhluta] og sagði hún að þetta væri hennar tími. Hinar stelpurnar gerðu líka virkilega vel svo ég er mjög ánægður.“