„Þetta hefur gengið ótrúlega vel en það hafa verið umtalsverð veikindi hjá þessum börnum,“ segir Valtýr.
Fyrir viku síðan voru tíu börn inniliggjandi og hefur því gengið ágætlega að útskrifa börnin. Valtýr segir börnin þó enn undir ströngu eftirliti og verði það næstu daga og jafnvel vikur eða mánuði í einhverjum tilfellum. Tugir barna veiktust í kjölfar sýkingarinnar og var leikskólanum lokað á meðan málið var til rannsóknar. Hann var opnaður aftur í síðustu viku.
Eins og hefur komið fram í umfjöllun var niðurstaða rannsóknar starfshóps á uppruna smitsins að um hefði verið að ræða sýkt hakk frá Kjarnafæði sem hefði ekki verið meðhöndlað með réttum hætti í eldhúsi Mánagarðs.
Hafa tilkynnt veikindi til Sjóvá
Þá var það staðfest í síðustu viku að Félagsstofnun stúdenta, sem rekur leikskólanna, væri bótaskylt vegna veikindanna. Foreldrum var þá bent á að hafa samband við Sjóvá.
Samkvæmt upplýsingum frá Sjóvá hafa einhverjir haft samband.
„Okkur hafa borist tilkynningar og fyrirspurnir varðandi málið en skammt er liðið frá því að yfirlýsing um bótaskyldu var gefin og við erum því ennþá að safna gögnum og vinna úr þeim. Við getum hins vegar ekki veitt nánari upplýsingar um afgreiðslu einstakra mála,“ segir í svari frá Jóhanni Þórssyni markaðsstjóra Sjóvá um málið.