Þetta kemur fram í tilkynningu. Evalotte mun taka við verðlaunum sínum við hátíðlega verðlaunaafhendingu 37. evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem fram fer 7. desember í Luzern í Sviss.
Í tilkynningunni segir að þetta séu tíundu alþjóðlegu kvikmyndaverðlaun Ljósbrots sem hafi verið að fara sigurför um heiminn eftir að hafa hlotið standandi lófaklapp sem opnunarmynd á Kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Myndin gerist á fallegum vordegi þegar líf Unu snýst á hliðina á svipstundu og upphefst rússibanaferð tilfinninga. Þar sem mörkin milli hláturs og gráturs, fegurðar og sorgar, verða stundum óskýr. Með aðalhlutverk fara, Elín Hall, Katla Njálsdóttir, Mikael Kaaber, Baldur Einarsson, Gunnar Kristjánsson og Ágúst Wigum.
„Við erum náttúrulega í skýjunum og voðalega stolt af Evalotte. Hún er mikil listakona og frábær samstarfsfélagi. Þetta var í fyrsta sinn sem við vinnum saman en hún féll strax vel inn í hópinn okkar og teymisvinnu. Hnefi af hæfileikum og frábær manneskja. Það er ekki hægt að óska sér betri samstarfsaðila,“ segir Rúnar Rúnarsson leikstjóri myndarinnar.