Körfubolti

„Hvernig eigum við að ná á EM ef að lands­liðs­menn okkar eru ekki í ­liðinu?“

Sindri Sverrisson skrifar
Vasilis Spanoulis er landsliðsþjálfari Grikklands, sem óvænt tapaði fyrir Bretlandi í gærkvöld.
Vasilis Spanoulis er landsliðsþjálfari Grikklands, sem óvænt tapaði fyrir Bretlandi í gærkvöld. Getty/Alex Gottschalk

Bretar unnu afar óvæntan endurkomusigur gegn hinni miklu körfuboltaþjóð Grikkjum í gærkvöld, 73-72, í undankeppni EM karla í körfubolta. Þjálfari Grikklands spyr sig hvernig liðið eigi að komast á EM ef það geti ekki notað landsliðsmennina sína.

Grikkland náði 17 stiga forskoti í Lundúnum í gær, 39-22, en Bretar, sem ekki eru þekktir fyrir afrek í körfubolta, náðu að snúa stöðunni sér í vil og áttu meðal annars 21-3 kafla sem kom þeim tíu stigum yfir í leiknum. Þeir náðu svo að hanga á forystunni í lokin og tryggja sér sinn annan sigur í undankeppninni.

Grikkland, Bretland og Tékkland eru því með tvo sigra hvert eftir þrjár umferðir af sex, en Hollendingar neðstir og án sigurs.

Í lið Grikklands í gær vantaði margar af helstu stjörnunum og þar á meðal auðvitað Giannis Antetokounmpo en einnig fjölda annarra leikmanna sem spila með félagsliðum í Euroleague. Aðeins þrír leikmenn voru í hópnum í gær úr Ólympíuhópnum í París í sumar.

Kallar eftir fleiri lykilmönnum

Engu að síður er sigur Breta afar óvæntur en þeir eru í 50. sæti heimslistans á meðan að Grikkland er í 13. sæti.

„Við flýttum okkur of mikið og létum boltann ekki ganga nógu vel. Við vorum líka hikandi og áttum erfitt með að taka ákvarðanir. Núna verðum við að vinna á sunnudaginn,“ sagði Vassilis Spanoulis, þjálfari Grikklands, en liðið tekur á móti Bretlandi á sunnudaginn.

Hann er óánægður með að fá ekki fleiri leikmenn frá liðum sem spla í Euroleague, bestu Evrópukeppni félagsliða. Sú deild er einkarekin og tekur ekki tillit til landsleikjadaga, ekki frekar en NBA-deildin.

„Ég er að bíða eftir mönnum. Í gær spilaði [Tornike] Sengelia í Euroleague en svo með landsliði Georgíu í dag. Hvernig eigum við að komast á EM ef að landsliðsmennirnir okkar eru ekki í landsliðinu? Ef þeir eru ekki meiddir eða þreyttir þá vil ég að þeir komi og hjálpi. Það eru öll liðin hérna góð. Núna skoðum við hvað við gerðum rangt og reynum að landa sigri sem núna er mjög mikilvægt fyrir okkur,“ sagði Spanoulis.

Undankeppni EM stendur nú yfir og leikur Ísland á móti Ítalíu í Laugardalshöll í kvöld, í leik sem hefst klukkan 19:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×