Viðskipti innlent

First Water í hý­býli Ísfélagsins á Þor­láks­höfn

Samúel Karl Ólason skrifar
Samkvæmt tilkynningu hafa forsvarsmenn First Water nú þegar fest kaup á vinnslubúnaði og er gert ráð fyrir að vinnsla fyrirtækisins fari af stað á fyrri hluta næsta árs.
Samkvæmt tilkynningu hafa forsvarsmenn First Water nú þegar fest kaup á vinnslubúnaði og er gert ráð fyrir að vinnsla fyrirtækisins fari af stað á fyrri hluta næsta árs. Aðsend

Landeldisfyrirtækið First Water og Ísfélag hf. hafa samið um að fyrrnefnda fyrirtækið leigi húsnæði og aðstöðu hjá því síðarnefnda í Þorlákshöfn. Engin vinnsla hefur verið í húsnæðinu frá því í september.

Samkvæmt tilkynningu hafa forsvarsmenn First Water nú þegar fest kaup á vinnslubúnaði og er gert ráð fyrir að vinnsla fyrirtækisins fari af stað á fyrri hluta næsta árs. Allur lax First Water verður unninn í húsnæði Ísfélagsins og stendur til að starfsemin verði í húsnæðinu í allt að þrjú ár. Vinnslustöð First Water sem mun rísa á Laxabraut í Þorlákshöfn, verður tekin í notkun haustið 2026.

„Við gleðjumst yfir því að samningar náðust og erum spennt fyrir samstarfinu við Ísfélagið. Eins sjáum við mikinn hag í því að flytja þessa starfsemi til Þorlákshafnar enda erum við fyrirtæki sem er staðsett í Ölfusi og kjósum eðlilega að hafa alla vinnslu okkar þar. Húsnæði Ísfélagsins og öll aðstaðan á svæðinu er til fyrirmyndar og hentar vinnslunni mjög vel. Þar af leiðandi er okkur ekkert að vanbúnaði að bretta upp ermar og hefjast handa,“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water í áðurnefndi tilkynningu.

Fyrr í haust var þúsundasta laxatonninu slátrað hjá First Water. Í framtíðinni stendur til að framleiða um fimmtíu þúsund tonn af heilum og slægðum laxi.

„Það er ekkert nema jákvætt að starfsemi fari aftur á fullt í húsnæðinu okkar. Við hjá Ísfélaginu erum ánægð með að geta lagt hönd á plóg þegar kemur að þessu flotta verkefni og hlökkum til samstarfsins við First Water,“ segir Stefán Friðriksson forstjóri Ísfélags hf..


Tengdar fréttir

Segir seinlæti First Water stórfurðulegt

Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins og talsmaður Heidelberg Cement, furðar sig mjög á yfirlýsingu Eggerts Þórs Kristóferssonar forstjóra First Water hf um að starfsemi á landeldi og mölunarverksmiðjunnar geti ekki farið saman.

Stefán Þór til First Water

Stefán Þór Winkel Jessen hefur verið ráðinn sem tæknistjóri fiskeldisfyrirtækisins First Water, sem áður hét Landeldi. Stefán tekur meðfram því sæti í framkvæmdastjórn félagsins sem hann hefur starfað hjá síðan í lok síðasta árs.

Mun leiða fersk­vatns­eldi hjá First Wa­ter

Landeldisfyrirtækið First Water hefur ráðið Arnþór Gústavsson í nýtt starf innan fyrirtækisins en hann fer úr starfi gæðastjóra yfir í að stýra ferskvatnseldi félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×