Innlent

Lykil­at­riði að al­menningur fái upp­lýsingar um kennara­deiluna

Bjarki Sigurðsson skrifar
Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Vísir/Vilhelm

Lítið er að frétta af kjaradeilu kennara við ríki og sveitarfélög en fjölmiðlabann er í deilunni. Formaður Blaðamannafélagsins segir lykilatriði að almenningur fái upplýsingar um hvernig deilunni miðar. 

Verkföll eru komin á fimmtu viku hjá völdum hópi kennara. Hægur gangur er á kjaraviðræðum samkvæmt upplýsingum frá Ástráði Haraldssyni ríkissáttasemjara. Fjölmiðlar hafa ekki getað rætt við fulltrúa Kennarasambandsins og samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga síðan á laugardag þegar ríkissáttasemjari setti á fjölmiðlabann.

Það er þekkt að fjölmiðlabann sé sett á þegar stutt er í samning og viðræður ganga vel. Það þekkjast þó nokkur dæmi þar sem skeytasendingar milli deiluaðila í gegnum fjölmiðla verða til þess að fjölmiðlabann er sett á, líkt og raunin er í kennaradeilunni.

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélagsins, segir lykilatriði að almenningur fái upplýsingar um hvernig deilunni miðar.

„Tala nú ekki um í svona stóru máli eins og þessu þar sem hagsmunir alls samfélagsins eru undir. Þarna er líka hópur af foreldrum sem er með þessu fjölmiðlabanni haldið í fullkominni óvissu um hvort það sé eitthvað að leysast úr þessu eða ekki,“ segir Sigríður Dögg.

Hún skilur vel að ríkissáttasemjari horfi ekki á málin frá sjónarhorni blaðamanna.

„En ég trúi ekki öðru en að hann átti sig á því hversu mikilvægt það er að fjölmiðlar og blaðamenn geti unnið vinnuna sína í svona stóru máli. Það er mikilvægt að foreldrar og aðrir fái upplýsingar. Ég trúi því að þetta geti varla staðið yfir mikið lengur þetta fjölmiðlabann. Enda ætti áherslan miklu frekar að vera á samninganefndirnar að hann brýni fyrir þeim að haga sér almennilega í opinberri umræðu. Að stýra orðum sínum með þeim hætti að þau espi ekki upp deiluna,“ segir Sigríður Dögg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×