Handbolti

„Þetta er mjög ljúft“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Berglind Þorsteinsdóttir í leik með landsliðinu.
Berglind Þorsteinsdóttir í leik með landsliðinu. Vísir/Viktor Freyr

Berglind Þorsteinsdóttir nýtur þess vel að vera mætt með íslenska kvennalandsliðinu á stórmót í annað sinn. Undirbúningur liðsins hefur gengið vel fyrir stóra prófraun gegn Hollandi á morgun.

„Ótrúlega gaman að vera mættur aftur. Maður veit svona sirka hvað maður er að fara út í, af því að það er ár síðan við gerðum þetta síðast. Ég er mjög spennt,“ segir Berglind í samtali við íþróttadeild.

Klippa: Berglind mjög spennt

Undirbúningurinn hafi gengið vel. Ísland tapaði naumlega fyrir Sviss í tveimur æfingaleikjum fyrir mót en margt jákvætt hægt að taka út úr þeim leikjum.

„Þetta hefur gengið mjög vel. Mjög góður undirbúningur. Við fengum þarna tvo æfingaleiki og svo líka vináttuleikina gegn Póllandi. Flottir leikir og við náðum að spila okkur vel saman þar. Við erum vel gíraðar,“ segir Berglind sem nýtur þess þá vel að vera komin í Alpana í Austurríki.

„Það er svo fallegt hérna. Ótrúlega gott loft og næs veður. Þetta er mjög ljúft.“

Liðsfélagi Berglindar hjá Fram, Steinunn Björnsdóttir, er annað en Berglind að þreyta frumraun sína á stórmóti. Hún eignaðist barn um það leyti sem Ísland fór á HM í fyrra en er nú komin inn af fullum krafti, eitthvað sem Berglind fagnar mjög.

„Hún er svo geggjuð týpa. Maður lítur ótrúlega mikið upp til hennar og geggjað að fá að spila með henni. Bara ótrúlega gaman,“ segir Berglind.

Holland er andstæðingur morgundagsins en um er að ræða eitt besta lið heims. Berglind er meðvituð um stærð prófsins sem leikur morgundagsins verður.

„Úff, þetta verður erfitt. Við ætlum að gefa allt í þetta og ef við eigum góðan leik þá er náttúrulega allt hægt. Við erum bara mjög spenntar,“ segir Berglind.

Fleira kemur fram í viðtalinu við Berglindi sem má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×