Viðskipti innlent

Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu

Árni Sæberg skrifar
Quang Lé hefur sett Herkastalann á sölu.
Quang Lé hefur sett Herkastalann á sölu. Vísir

Herkastalinn, eitt sögufrægasta hús Reykjavíkur, hefur verið skráð á sölu og tilboða er óskað. Húsið er í eigu félags í eigu Quangs Lé, athafnamanns sem grunaður er um fjölda afbrota.

Talsverða athygli vakti árið 2022 þegar íslenskt-víetnamskt fjölskyldufyrirtæki festi kaup á Herkastalanum, 1.400 fermetra húsi í miðbæ Reykjavíkur, fyrir sléttan hálfan milljarð króna. Fasteignamat hússins er nú 544 milljónir króna, að því er segir á fasteignavef Vísis.

Þar segir að Kirkjustræti 2 sé eitt merkasta og sögufrægasta hús Reykjavíkur. Það standi á fallegum stað í miðborg Reykjavíkur. Húsið sé friðað að utan. Það sé teiknað af Einari Erlendssyni, byggt árið 1916 og  1405,4 fm að stærð, sem skiptist í kjallara, þrjár hæðir, og rishæð. Húsið sé skráð gistihús í þjóðskrá.

Aðeins tvö félög eftir 

Quang Lé, sem einnig gengur undir nafninu Davíð Viðarsson, varð landsfrægur nánast yfir nótt þegar miðlæg rannsóknardeild lögreglu réðst í umfangsmiklar aðgerðir víða um land í byrjun mars síðastliðins.

Quang hefur síðan þá haft stöðu sakbornings í umfangsmiklu sakamáli. Hann er grunaður um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og skipulagða brotastarfsemi.

Aðgerðirnar beindust að miklu leyti að fyrirtækjum Quangs, sem voru fleiri en flestir gerðu sér grein fyrir.

Meðal fyrirtækjanna voru ræstifyrirtækið Vy-þrif, sem varð alræmt þegar ólöglegur matvælalager þess í Sóltúni komst í fréttir, Vietnam restaurant, Vietnam Market, NQ Fasteignir, EA17 ehf., Vietnam Cuisine, Wokon ehf. og Wokon Mathöll ehf.. 

NQ Fasteignir er skráður eigandi Herkastalans og er, ásamt Vietnam Market, eina félag Quangs sem enn hefur ekki verið úrskurðað gjaldþrota.

Keypti kastalann á láni

Greint var frá því í sumar að samkvæmt kauptilboði um Herkastalann, sem Vísir hefur undir höndum, hafi kaupverð Herkastalans verið 500 milljónir króna. Kaupverðið skyldi greitt á eftirfarandi hátt:

  • Kr. 40.000.000 í peningum við undirritun kaupsamnings.
  • Kr. 30.000.000 í peningum þann 1. maí 2022.
  • Kr. 30.000.000 í peningum þann 1. ágúst 2022.
  • Kr. 400.000.000 með nýju veðláni á 1. veðrétt fasteignarinnar.

Samkvæmt heimildum Vísis veitti Landsbankinn Quang 400 milljóna króna lán og Quang afhenti Kastala fasteignafélagi milljónirnar 40. Hins vegar hafi hann staðið frammi fyrir því að eiga einungis 20 milljónir króna þegar kom að annarri greiðslu. Hann hafi þá samið við Landsbankann og fengið 40 milljónir aukalega að láni með veði á öðrum veðrétti í Herkastalanum.


Tengdar fréttir

Davíð Viðarsson heitir nú aftur Quang Le

Quang Le eða Davíð Viðarsson hefur nú breytt nafni sínu enn á ný, nú frá því að heita Davíð Viðarsson yfir í það að heita aftur Quang Le eða Quang Ngoc Le fullu nafni. Það sést í þjóðskrá og í fyrirtækjaskrá þegar fyrirtæki í hans eigu eru leituð uppi.

Quang Lé laus úr gæsluvarðhaldi en í farbanni

Quang Lé og tveir aðrir sem grunaðir eru um mansal og fleiri glæpi eru laus úr gæsluvarðhaldi. Um er að ræða tvo karla og eina konu. Þau hafa verið úrskurðuð í tólf vikna farbann. Þau hafa öll verið í gæsluvarðhaldi frá því í mars. Rannsókn miðar vel að sögn lögreglu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×