Viðskipti erlent

Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Launapakki Musk vakti meðal annars þá spurningu hvort vinnuframlag eins manns gæti verið 56 milljarða dala virði.
Launapakki Musk vakti meðal annars þá spurningu hvort vinnuframlag eins manns gæti verið 56 milljarða dala virði. AP/Evan Vucci

Dómari í Delaware hefur ákveðið að Elon Musk fái ekki 56 milljarða dala í laun frá Tesla, þrátt fyrir samþykki stjórnar fyrirtækisins í sumar.

Kathaleen McCormick komst að sömu niðurstöðu í janúar síðastliðnum eftir að hluthafar í Tesla ákváðu að leita til dómstóla. Þá sagði hún launapakkann í meira lagi óhóflegan og ítrekaði í gær þá afstöðu sína, þrátt fyrir að meirihluti stjórnar hafi samþykkt pakkann á ný í millitíðinni.

Fjárfestar á borð við norska olíusjóðinn og lífeyrissjóð kennara í Kaliforníu greiddu atkvæði gegn launapakkanum, sem stjórnin sagði nauðsynlegan til að halda Musk hjá Tesla. 

Launapakkinn var fyrst ákvarðaður árið 2017 og  samþykktur af meirihluta hluthafa árið 2018. Einn hluthafanna sagði stjórnina hins vegar hafa verið misvísandi í umfjöllun sinni um pakkann í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar og ákvað að höfða mál. 

Eftir ákvörðun dómarans í janúar voru aftur greidd atkvæði um hann í sumar og pakkinn samþykktur á ný.

McCormick sagði í janúar að umfjöllun stjórnar um launapakkann hefði verið ábótavant og benti meðal annars á að hún væri skipuð fjölmörgum nánum samstarfsmönnum Musk, til að mynda skilnaðarlögmanninum hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×