Menning

Verður ýmist í leyfi eða hluta­starfi á lista­manna­launum

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, rithöfundur og blaðamaður, fékk úthlutað tólf mánaða listamannalaunum fyrir næsta ár.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, rithöfundur og blaðamaður, fékk úthlutað tólf mánaða listamannalaunum fyrir næsta ár. Vísir/Vilhelm

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, rithöfundur og blaðamaður hjá Ríkisútvarpinu, mun ýmist taka sér leyfi eða vinna í hlutastarfi hjá RÚV meðan hún nýtur listamannalauna allt næsta ár.

Í dag var tilkynnt hverjir hefðu hlotið náð fyrir augum hinna ýmsu úthlutunarnefnda sem ráða því hverjir fá umsóknir um listamannalaun fyrir næsta ár samþykktar, og hverjir ekki. Sigríður var ein þeirra sem fékk úthlutað úr launasjóði rithöfunda, tólf mánuði, og verður því á listamannalaunum á næsta ári.

Störf megi ekki hindra listsköpunina

Í samtali við fréttastofu segir Sigríður að samkvæmt reglugerð um starfslaun listamanna skuli þeir sem þeirra njóta ekki gegna öðru starfi sem telst meira en þriðjungur úr stöðugildi meðan þeir fá starfslaun, enda hindri það ekki listamanninn í að sinna verkefninu sem launin voru veitt til.

Með öðrum orðum má Sigríður ekki vera í meira en þriðjungsstarfshlutfalli á næsta ári.

„Þannig að ég verð ýmist í leyfi eða vinn undir 33% á RÚV á næsta ári, eins og ég hef gert hingað til á meðan ég er á starfslaunum. Ég er svo heppin að eiga skilningsríkan vinnuveitanda sem veitir mér svigrúm til að stilla vinnuna af þannig að ég geti skrifað,“ segir Sigríður.

Launin lægri en látið sé

Hún segir þó vert að hafa hugfast, þegar listamannalaunin eru annars vegar, að þær 560 þúsund krónur á mánuði sem launin eru, greiðist út í verktöku.

„Við eigum eftir að greiða af þeim skatta og launatengd gjöld. Eftir standa um 380.000 krónur á mánuði, sem eru hin raunverulegu listamannalaun.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.