Erlent

Sak­sóknari sagður ó­hæfur í síðasta málinu gegn Trump

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump, fyrrverandi og verðandi forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, fyrrverandi og verðandi forseti Bandaríkjanna. AP/Allison Robbert

Þriggja dómara áfrýjunarnefnd í Georgíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að héraðssaksóknarinn Fani Willis sé óhæf til að sækja mál gegn Donald Trump, þar sem hann og aðrir hafa verið ákærðir fyrir að reyna að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020 í ríkinu.

Áður hafði dómari komist að þeirri niðurstöðu að Willis þyrfti að reka saksóknarann sem hélt utan um málið vegna ástarsambands þeirra.

Tveir af þremur dómurum áfrýjunarnefndarinnar, sem allir voru skipaðir af Repúblikönum, komust þó að þeirri niðurstöðu að ekki dugði til að segja saksóknaranum upp. Willis þyrfti að segja sig frá málinu.

Þeir segja að eina leiðin til að endurvekja traust almennings á ferlinu sé að Willis komi ekki að því.

Sjá einnig: Saksóknari í máli Trumps segir af sér vegna framhjáhalds

Mikil óvissa ríkir nú um málaferlin gegn Trump og fjórtán bandamönnum hans í ríkinu en samkvæmt frétt New York Times er líklegt að ákvörðun dómaranna verði áfrýjað til æðra dómstigs, sem er Hæstiréttur Georgíu.

Ákvörðunin gæti þó bundið enda á síðasta virka dómsmálið gegn Donald Trump.

Trump var sakfelldur í þöggunarmálinu svokallaða í New York en ólíklegt að honum verði refsað í því máli, sökum þess að hann sigraði forsetakosningarnar í nóvember. Þá er báðum málum Jack Smith, sérstaks rannsakanda dómsmálaráðuneytisins, lokið án niðurstöðu. Þau mál snerust annarsvegar um árásina á þinghúsið 6. janúar 2021 og hins vegar um leynileg skjöl sem Trump tók með sér úr Hvíta húsinu.

Fani Willis er héraðssaksóknari í Fulton-sýslu i Georgíu sem er sú stærsta í ríkinu. Ólíklegt þykir að önnur sýsla þar hafi burði til að halda utan um málaferlin og verði málið fært gæti það ferli tekið mörg ár. Það að Trump verði aftur forseti þann 20. janúar bætir enn á flækjustigið varðandi málaferlin.

Sjá einnig: Meint framhjáhald gæti tafið málaferli gegn Trump um ár

Talsmaður Trumps sagði í yfirlýsingu vegna vendinganna að bandarískir kjósendur hafi veitt Trump umfangsmikið umboð og í leið krafist þess að látið yrði af öllum „nornaveiðum“ gegn honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×