Viðskipti innlent

Hafa bæst í eig­enda­hóp PwC

Atli Ísleifsson skrifar
Daníel J. Guðjónsson og Örn Valdimarsson.
Daníel J. Guðjónsson og Örn Valdimarsson.

Daníel J. Guðjónsson og Örn Valdimarsson hafa bæst í eigendahóp PwC. Eigendur PwC á Íslandi eru því nú orðnir sautján talsins.

Í tilkynningu segir að Daníel Jón sé endurskoðandi og hafi útskrifast með MAcc gráðu frá Háskóla Íslands árið 2013 og hlotið löggildingu í endurskoðun árið 2018.

„Hann hefur starfað hjá PwC í rúm tíu ár og á þeim tíma hefur hann stýrt stórum endurskoðunarverkefnum og verið abyrgðarmaður fyrir innleiðingu skrifstofunnar á nýjum tæknilausnum.

Daníel hefur komið víða við og m.a. unnið á skrifstofu PwC í Svíþjóð. Hann situr í skattanefnd FLE og komið að samningu löggildingarprófa í endurskoðun.

Örn Valdimarsson hagfræðingur

Örn lauk BS prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands og Executive Certificate námi frá Copenhagen Business School.

Hann hefur starfað hjá PwC frá miðju ári 2023 þegar hann tók við ráðgjafarsviði PwC.

Örn hefur mikla reynslu úr viðskiptalífinu, meðal annars hjá Viðskiptablaðinu og Eyrir Invest og hefur auk þess miðlað þeirri þekkingu í hlutverki mentors til sprotafyrirtækja,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×