Handbolti

Töl­fræðin á móti Argentínu: Gísli Þor­geir og Óðinn komu í leitirnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viktor Gísli Hallgrímsson varði nítján skot í leiknum enn einn stórleikurinn hjá honum á mótinu.
Viktor Gísli Hallgrímsson varði nítján skot í leiknum enn einn stórleikurinn hjá honum á mótinu. Vísir/Vilhelm

Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann sinn fimmta sigur í sex leikjum með liðið vann níu marka sigur á Argentínu, 30-21, í þriðja og síðasta leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í handbolta.

Eftir dapra byrjun komst íslenska liðið í gang og kláraði leikinn nokkuð sannfærandi.

Tveir af þeim leikmönnum sem hafa skilað mun minna en búist var við komu í leitirnar í þessum leik. Óðinn Þór Ríkharðsson var markahæstur með sjö mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson bjó til flest mörk eða tíu.

Íslensku strákarnir klikkuðu á fjórum af fyrstu fimm skotum sínum í leiknum og voru undir í upphafi leiks. Snorri Steinn tók leikhlé þegar fyrri hálfleikurinn var hálfnaður og íslenska liðið enn undir. Honum tókst þar að kveikja á sínum mönnum sem unnu seinni hluta hálfleiksins 10-4.

Einu sinni sem oftar var það Viktor Gísli sem hjálpaði íslenska liðinu að komast yfir slakan sóknarleik. Viktor Gísli varði alls þrettán skot í hálfleiknum eða 57 prósent skota sem komu á hann.

Viktor Gísli hefur sýnt mjög góðan stöðugleika á mótinu og fyrir utan þennan skelfilega fyrri hálfleik á móti Króatíu hefur hann varið mjög vel. Skotin urðu alls nítján í þessum leik og næstum því fimmtíu prósent markvarsla.

Íslenska liðið fór líka að fá mörk úr hægra horninu sem var ánægjuleg tilbreyting en Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði þrjú mörk í fyrri hálfleiknum. Hann bætti síðan við fjórum í seinni hálfleik og nýtti sitt vel.

Margir fengu að spila í seinni hálfleik og flestir skiluðu ágætum hlutum. Teitur Örn Einarsson fékk alvöru tækifæri og Einar Þorsteinn Ólafsson kom sér á blað. Áhyggjuefnið er frammistaða Þorsteins Leó Gunnarssonar sem klikkaði á öllum þremur skotum sínum í leiknum og tapaði fjórum boltum að auki. HM-sviðið virðist enn vera allt of stórt fyrir hann.

Vísir fylgist vel með tölfræði íslenska liðsins á mótinu og hefur nú tekið saman þá leikmenn sem sköruðu fram úr í tölunum í þessum sjötta leik Íslands á mótinu.

  • - Íslensku landsliðsmennirnir á móti Argentínu á HM 2025-
  • Hver skoraði mest:
  • 1. Óðinn Þór Ríkharðsson 7/1
  • 2. Viggó Kristjánsson 4/1
  • 2. Gísli Þorgeir Kristjánsson 4
  • 2. Orri Freyr Þorkelsson 4
  • 5. Janus Daði Smárason 3
  • 5. Teitur Örn Einarsson 3
  • 6. Elliði Snær Viðarsson 2
  • -
  • Markahæstir í fyrri hálfleik:
  • 1. Viggó Kristjánsson 4/1
  • 2. Óðinn Þór Ríkharðsson 3
  • 3. Gísli Þorgeir Kristjánsson 2
  • 3. Elliði Snær Viðarsson 2
  • 3. Orri Freyr Þorkelsson 2
  • -
  • Markahæstir í seinni hálfeik:
  • 1. Óðinn Þór Ríkharðsson 4/1
  • 2. Janus Daði Smárason 3
  • 2. Teitur Örn Einarsson 3
  • 4. Gísli Þorgeir Kristjánsson 2
  • 4. Orri Freyr Þorkelsson 2
  • -
  • Hver varði flest skot:
  • 1. Viktor Gísli Hallgrímsson 19 (49%)
  • 2. Björgvin Páll Gústavsson 0 (0%)
  • -
  • Hver spilaði mest í leiknum:
  • 1. Viktor Gísli Hallgrímsson 54:24
  • 2. Teitur Örn Einarsson 43:53
  • 3. Orri Freyr Þorkelsson 42:32
  • 4. Óðinn Þór Ríkharðsson 42:26
  • 5. Elvar Örn Jónsson 32:27
  • -
  • Hver skaut oftast á markið:
  • 1. Óðinn Þór Ríkharðsson 8
  • 2. Viggó Kristjánsson 5
  • 2. Teitur Örn Einarsson 5
  • 4. Gísli Þorgeir Kristjánsson 4
  • 4. Orri Freyr Þorkelsson 4
  • 6. Janus Daði Smárason 3
  • 6. Þorsteinn Leó Gunnarsson 3
  • -
  • Hver gaf flestar stoðsendingar:
  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 6
  • 2. Janus Daði Smárason 3
  • 2. JAron Pálmarsson 3
  • 4. Teitur Örn Einarsson 2
  • 4. Einar Þorsteinn Ólafsson 2
  • -
  • Hver átti þátt í flestum mörkum:
  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 10
  • 2. Óðinn Þór Ríkharðsson 7
  • 3. Janus Daði Smárason 6
  • 4. Teitur Örn Einarsson 5
  • 5. Viggó Kristjánsson 4
  • 5. Orri Freyr Þorkelsson 4
  • -
  • Hver stoppaði oftast í vörninni (HB Statz):
  • 1. Teitur Örn Einarsson 5
  • 2. Elvar Örn Jónsson 4
  • 3. Janus Daði Smárason 3
  • 3. Einar Þorsteinn Ólafsson 3
  • 5. Ýmir Örn Gíslason 2
  • 5. Viggó Kristjánsson 2
  • -
  • Mörk skoruð í tómt mark:
  • 1. Viktor Gísli Hallgrímsson 1
  • -
  • Hver tapaði boltanum oftast:
  • 1. Þorsteinn Leó Gunnarsson 4
  • 2. Elliði Snær Viðarsson 3
  • 3. Viggó Kristjánsson 2
  • -
  • Flest varin skot í vörn:
  • 1. Einar Þorsteinn Ólafsson 1
  • -
  • Hver fiskaði flest víti:
  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 2
  • 2. Elliði Snær Viðarsson 1
  • -
  • Hver fiskaði flesta brottrekstra:
  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 1
  • 1. Elliði Snær Viðarsson 1
  • -
  • Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í sókn (HB Statz):
  • 1. Gísli Þorgeir Kristjánsson 10,00
  • 2. Óðinn Þór Ríkharðsson 8,73
  • 3. Janus Daði Smárason 8,15
  • 4. Orri Freyr Þorkelsson 7,45
  • 5. Teitur Örn Einarsson 7,09
  • -
  • Hæsta einkunn íslensku leikmannanna í vörn (HB Statz):
  • 1. Einar Þorsteinn Ólafsson 7,81
  • 2. Teitur Örn Einarsson 6,80
  • 3. Elvar Örn Jónsson 6,61
  • 4. Viggó Kristjánsson 6,31
  • 5. Janus Daði Smárason 6,24
  • -
  • - Hvaðan komu flest mörk íslenska liðsins í leiknum -
  • 8 með gegnumbrotum
  • 4 af línu
  • 4 úr hægra horni
  • 4 úr vinstra horni
  • 2 með langskotum
  • 2 úr vítum
  • 11 úr hraðaupphlaupum (5 með seinni bylgju)
  • -
  • Skotnýting íslenska liðsins í leiknum:
  • 29% úr langskotum
  • 89% úr gegnumbrotum
  • 100% af línu
  • 80% úr hornum
  • 67% úr vítum
  • -
  • - Plús & mínus kladdinn í leiknum -
  • Mörk með langskotum: Argentína +4
  • Mörk af línu: Ísland +1
  • Mörk úr hraðaupphlaupum: Ísland +8
  • Tapaðir boltar: Jafnt
  • Fiskuð víti: Argentína +2
  • -
  • Varin skot markvarða: Ísland +11
  • Varin víti markvarða: Argentína +1
  • Misheppnuð skot: Argentína +11
  • Löglegar stöðvanir: Ísland +5
  • Refsimínútur: Ísland +4 mín.
  • -
  • - Góðu og slæmu kaflarnir í leiknum -
  • Fyrri hálfleikurinn:
  • 1. til 10. mínúta: Argentína +1 (4-3)
  • 11. til 20. mínúta: Ísland +1 (5-4)
  • 21. til 30. mínúta: Ísland +5 (7-2)
  • Seinni hálfleikurinn:
  • 31. til 40. mínúta: Ísland +4 (7-3)
  • 41. til 50. mínúta: Ísland +1 (5-4)
  • 51. til 60. mínúta: Argentína +1 (4-3)
  • -
  • Byrjun hálfleikja: Ísland +3 (10-7)
  • Lok hálfleikja: Ísland +4 (10-6)
  • Fyrri hálfleikur: Ísland +5 (15-10)
  • Seinni hálfleikur: Ísland +4 (15-11)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×